Skýrsluna Starfsskilyrði stjórnvalda, sem gefin var út af forsætisráðuneytinu og er lesefni í stjórnsýslurétti II, er hægt að nálgast á heimasíðu Alþingis.
Sumt af efninu hérna kann að vera upprunið frá öðrum og ég hef ekki nennt að finna það og tína út. Stærstur hluti er þó saminn af mér, enda þótt stundum sé efnið í grunninn glósur sem dreift hefur verið af kennurum.
Öllum er heimilt að notfæra sér fátæklegt efnið á þessari síðu, enda sé heimilda getið.