Pontiac GTO


Mesta vöðvabúnt sögunnar?

Forsíða

Ég og GTO

X 4511

Sá Guli

Myndir 2001

Saga Pontiac GTO

Krækjur

Höfundur

English

 

 

Pontiac GTO kom fram á sjónarsviðið 1964. Olíukreppan var ekki í augsýn og engin ástæða til að hafa áhyggjur af eldsneytisnotkun. Vélaraflið var í fyrirrúmi og það notað óspart til að höfða til væntanlegra kaupenda. Á þessum árum var samkeppnin hörð í þessum geira bílaiðnaðarins vestanahafs og hugtakið "muscle car" í hávegum haft.

 Sumir segja að GTO sé mesta vöðvabúntið sem framleitt hefur verið, eða beri af öðrum bílum í þessum flokki. Erfitt er að meta hvað sé réttí því efni. Kannski er það aðeins til marks um klassíska fortíðarþrá þegar miðaldra stútungskarlar gráta enn "geitina" sem þeir seldu forðum daga og vildu gefa mikið fyrir að eignast hana á ný.

 Sá sem þetta ritar er enginn sérfræðingur í GTO-fræðum. Enn síður ætlar hann sér ekki að dæma um ágæti þessa bíls í samanburði við aðrar gerðir. Markmiðið er  að veita áhugasömum  Íslendingum tækifæri til að skoða þetta undarlega farartæki og ýmislegt sem því tengist á einum stað á vefnum.

Sign my GuestbookFREE GUESTBOOKSView my Guestbook

Sign in  |  Recent Site Activity  |  Terms  |  Report Abuse  |  Print page  |  Powered by Google Sites