|
...að tala af virðingu um bekkjarfélaga og ættingja þeirra í áheyrn barns þíns.
Mikilvægt er að foreldrar geri sér grein fyrir að þeir eiga stóran þátt í að móta viðhorf barna sinna. Engir tveir einstaklingar eru eins og mikilvægt er að kenna barninu að virða mismunandi skoðanir, útlit og siði fólks. Fordómar leynast víða. Verum þess vegna góðar fyrirmyndir þegar við tölum um vini, nágranna, ættingja, vinnufélaga, kennara og bekkjarfélaga.
...að hjálpa barni þínu að mynda sterkt tengslanet innan umsjónarhóps og árgangsins. Að kynnast bekkjarfélögum eflir ekki bara samstöðu og góðan bekkjaranda, heldur eykur einnig umburðarlyndi barnanna og víkkar sjóndeildarhring þeirra. Hvetjum börnin einnig til að taka afstöðu gegn einelti með því að hleypa öllum inn í félagahópinn og bjóða þeim sem eru einmana eða eiga fáa vini að vera með. Foreldrar eru einnig hvattir til að kynnast bekkjarfélögum og læra nöfn þeirra.
...að mynda sterkt tengslanet við foreldra annarra barna í umsjónarhópnum og árganginum.
Foreldrasamstarf hefur mjög jákvæð áhrif á skólastarfið og er góð forvörn gegn einelti. Það er mjög mikilvægt að foreldrar barna þekkist til að geta haft samráð um atriði sem koma upp og snerta börnin.
...að gæta að því að enginn verði útundan þegar verið er að bjóða í afmæli.
Ágæt regla er að bjóða öllum af sama kyni úr sama umsjónarhópi. Ef allir bjóða bara bestu vinunum, þá eru einhverjir sem fá sjaldan eða jafnvel aldrei afmælisboð. Afmæli getur verið gott tækifæri til að kynnast fleirum en nánustu vinum barnsins. Það á ekki að dreifa afmælisboðskortum í skólanum og það er æskilegt að láta vita ef barn kemst ekki í afmæli.
...að taka afstöðu gegn einelti. Hvettu barnið til að taka afstöðu gegn einelti með því að neita að taka þátt í einelti og koma til hjálpar þegar eineltismál koma upp. Hvettu barnið einnig til að segja frá ef einhver er lagður í einelti og útskýrðu að það er ekki að klaga þegar það lætur vita af einelti eða ofbeldi heldur er það að hjálpa öðrum. Hafðu strax samband við skólann ef grunur vaknar um einelti hvort sem það er gegn þínu barni eða annarra. Bestu kveðjur, Vinnuhópur gegn einelti f.h. Foreldrafélags Sunnulækjarskóla Meira efni tengt einelti sjá hér
|