Viðburðir

  Um foreldrafélagið

  Fréttabréf

  Um skólaráðið

 
 

  Foreldrarölt

  Tenglar 

 
 
  Foreldrafundir:
 
  
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Viðburðir

Skólaárið 2011-2012
 
3. Bekkur
3. bekkur: Sundferð
Við ætlum að skella okkur í sund með krakkana í 3. bekk fimmtudaginn 3. maí og eiga góða stund saman. Áætlað er að hittast í sundlauginni milli 18 og 20. Vonumst til að sjá sem flesta.
Kveðja tenglar 3. bekk
 
14. mars 2012
2. bekkur: Sundferð
Við höfum ákveðið að skella okkur í sund með krakkana í 2.bekk á miðvikudaginn 14.mars. Áætlað er að hittast í Sundhöll Selfoss kl. 17-19 og synda saman:)
Bestu kveðjur og sjáumst í sundi.
Tenglar í 2.bekk
 
28. febrúar 2012
5. bekkur: Bingó. Aðgangseyrir er einn vinningur!
Kæru 5.bekkingar og foreldrar/forráðamenn.
Næstkomandi þriðjudag, 28. febrúar kl. 17:30 verður BINGÓ fyrir 5. bekkinga hér í skólanum. Spjöldin eru frí en aðgangseyrir er einn vinningur fyrir bingóið. Við biðjum því ykkur foreldra um að vera börnunum innan handar með að útvega einn vinning. Vinningarnir þurfa alls ekki að vera stórir.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja tenglar úr 5. bekk

 
 
15. febrúar 2012
3. bekkur: Spilakvöld í 3. HDG
Sælir foreldrar/forráðarmenn
Miðvikudaginn 15.febrúar ætlum við að halda spilakvöld fyrir börn og foreldra í 3. HDG á heimasvæðinu þeirra í skólanum frá kl: 17-19.
Börnin mega hafa með sér hressingu (safa og popp/snakk).
Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eiga skemmtilegan seinnipart saman.
Kveðja bekkjatenglar 3. HDG

 
24. febrúar 2012
3. bekkur: Spilakvöld 3.GG
Sælir foreldrar/forráðarmenn
Þriðjudaginn 24. Janúar ætlum við að halda spilakvöld fyrir 3 GG á heimasvæðinu þeirra í skólanum frá kl:
17-19. Börnin mega hafa með sér hressingu (safa og popp/snakk). Vonumst að sem flestir sjái sér fært að mæta þó að fyrirvarinn sé stuttur og eiga skemmtilegan seinnipart með okkur.
Kveðja Bekkjatenglar

16.desember 2011
8. bekkur: Kósýkvöld - 8.ESG
Við tenglarnir ætlum að bjóða krökkunum heim, spila ýmis spil og sötra heitt kakó og kannski nokkrar piparkökur með. Hittumst hress á föstudaginn 16.des klukkan 20-22.
Kveðja tenglar
 
 
30. nóvember 2011
2. bekkur: Vasaljósaferð
Miðvikudaginn 30.nóvember ætlum við í 2.bekk að fara í vasaljósaferð í Gesthúsa - skóg.
Hugmyndin er að hittast í Gesthúsum klukkan 18:00 og leika okkur í myrkrinu, með vasaljós og nesti.
Vonumst til að sjá sem flesta!!
Kveðja tenglar í 2.bekk
 
 
30. nóvember 2011
5. bekkur: Spilakvöld í 5. VB
Kæru foreldrar í 5. VB.
Nú ætlum við að hittast með börnunum okkar, eiga skemmtilega stund og spila félagsvist.
Spilakvöldið verður næstkomandi miðvikudag, 30. nóvember,  kl. 18:15 í bekkjarstofunni þeirra og mun standa í ca. 1 til 1 ½  klst.
Gott væri ef einhverjir myndu stinga spilastokk að heiman í vasann sinn eða veskið sitt og taka með ef 8 stokkar í bekkjarstofunni nægja ekki.
Vonumst til að sjá sem flesta,
Tenglarnir í 5.VB

 

29. nóvember 2011
5. bekkur: Spilakvöld í MSG
Þriðjudagskvöldið 29. nóvember ætlum við í 5. MSG að hittast á þeirra svæði og spila saman. Hver og einn kemur með eitthvað smálegt á hlaðborð og sinn eigin drykk.
Spilakvöldið verður frá kl: 18.00 - 19.30. Það má koma með spil með sér, venjuleg handspil eru til.
Sjáumst hress og kát,
Tenglarnir í 5. MSG

 

24. nóvember 2011

3. bekkur: Bingó
Kæru foreldrar/forráðamenn.
Fimmtudaginn 24. nóvember verður bingó fyrir nemendur í 3. bekk
Sunnulækjarskóla. Bingóið verður í Fjallasal og hefst kl. 18:00. Við hvetjum að sjálfsögðu foreldra til að mæta með börnunum og hjálpa til við spilamennskuna. Einnig langar okkur að biðja foreldra að hjálpa okkur tenglunum að útvega vinninga. Þeir foreldrar sem hafa tök á því eru vinsamlegast beðnir að láta okkur vita með tölvupósti í síðasta lagi þriðjudaginn 22. nóv.
Kveðja frá tenglum
 
8. nóvember 2011
4. bekkur: Furðufatadiskó og spilastund
Furðufatadiskó og spilastund 8. nóvember í Sunnulækjarskóla. Krakkarnir klæða sig furðulega upp ef vill og mega bæði hafa með sér nammipoka (hámark að andvirði 200 kr.) og safa eða drykk. Þau geta bæði dansað sér til skemmtunar og/eða spilað saman með gömlu góðu spilunum. Þeir hönnunnarglöðu geta þegar hafið hugmyndavinnuna en þeir sem vilja endurnýta skemmtilegu fötin sem kannski eru heima hjá afa og ömmu, eða bara í klæðaskáp pabba og mömmu, geta líka hafið "stíleseringar." Þessi viðburður er hugsaður án systkina en foreldrar eru hvattir til þátttöku.
 
 
 
 
26.október 2011
3. bekkur: Sundferð
Miðvikudaginn 26. október ætlum við, nemendur og foreldrar í 3. bekk að hittast í Sundhöll Selfoss
kl. 17.30 - 19.30 og skemmta okkur saman.
Bestu kveðjur, tenglar í 3. bekk
 
 
                                                                            19. október 2011
2. bekkur: Sundferð
Miðvikudaginn 19. október ætlum við, nemendur og foreldrar í 2. bekk að hittast í Sundhöll Selfoss
kl. 17.00 - 19.00 og skemmta okkur saman.
Bestu kveðjur, tenglar í 2. bekk
 
 
 
17. október 2011
3. bekkur: Kaffispjall
Kæru foreldrar/forráðamenn.
Okkur tenglunum í 3.bekk Sunnulækjarskóla langar að bjóða ykkur á smá fund á Kaffi Krús mánudaginn 17. október kl: 20:00. Hugmynd fundarins er að foreldrar geti kynnst frekar og komið á framfæri skoðunum og hugmyndum varðandi ýmis mál eins og bekkjaskemmtanir, afmæli og fleira. Vonumst til að sem flestir mæti.
Við hlökkum til að sjá ykkur. Kveðja tenglar úr 3. bekk.
 
13. október 2011
4. bekkur: Sundferð
Fimmtudaginn 13. október kl. 17- 19 er planið að skella okkur í sund í Sundhöll Selfoss! Við viljum sjá alla krakka og sem flesta foreldra, forráðamenn eða systkini í fylgd þeirra. Athugið að reglur segja til um að börn yngri en 10 ára mega ekki fara ein í sund. Hins vegar mega 15 ára og eldri vera með tvö börn yngri en 10 ára. Ætlum að hafa það skemmtilegt saman.  Kveðja, bekkjartenglar 4. bekkjar
 
 
 
 
10. október 2011
2. bekkur: Kaffispjall
Kæru foreldrar/forráðamenn.
Okkur tenglunum í 2.bekk Sunnulækjarskóla langar að bjóða ykkur á smá fund á Kaffi Krús mánudaginn 10. október kl: 20:00. Hugmynd fundarins er að foreldrar geti kynnst frekar og komið á framfæri skoðunum og hugmyndum varðandi ýmis mál eins og bekkjaskemmtanir, afmæli og fleira.
Vonumst til að sem flestir mæti.
Við hlökkum til að sjá ykkur. Kveðja tenglar úr 2. bekk.
 
 
20. september 2011
Fundur með tenglum
Kæru tenglar
Stjórn Foreldrafélags Sunnulækjarskóla boðar til fundar með öllum tenglum í Sunnulækjarskóla þriðjudaginn 20. september kl. 17. Markmið fundarins er að segja stuttlega frá tenglastarfinu og aðstoða nýja tengla við að koma foreldrastarfinu af stað.
Þarna skapast gott tækifæri til að hitta tengla sem komnir eru með reynslu og jafnvel ræða önnur mál sem þið viljið koma á framfæri við stjórn Foreldrafélagsins.
Eftir stuttan fund með stjórn foreldrafélags gefst tenglum í hverjum árgangi tækifæri til að hittast og stilla saman strengi sína.

Kær kveðja,
stjórn Foreldrafélags Sunnulækjarskóla.
 
 
 
Skólaárið 2010-2011
17. maí 2011
Aðalfundur
Aðalfundur Foreldrafélags Sunnulækjarskóli verður haldinn þriðjudaginn 17.maí 2011 kl. 20:00 í Fjallasal
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins
2. Gjaldkeri gerir grein fyrir reikningum og leggur fram til samþykktar
3. Lagabreytingar
4. Kosning í stjórn Foreldrafélags Sunnulækjarskóla
5. Kosning varamenn í skólaráð
6. Aðalfundur ákveður upphæð árgjalds fyrir skólaárið 2011-2012
7. Önnur mál
Vonum til að sjá sem flestir. Kveðja stjórnin
 
6. maí 2011
1.bekkur: Fjöruferð
Kæru foreldrar / forráðamenn 1. bekkinga í Árborg
Föstudaginn 6. maí ætlum við í fjöruferð á Stokkseyri með börnunum.

Við stefnum á því að leika okkur saman frá kl. 16 -18.
Munið að vera klædd eftir veðri og taka með nesti.
Ekki má gleyma skóflu og fötu.
Vonumst til að sjá sem flesta og skemmtum okkur vel saman.

Með kveðju, bekkjartenglar 1. bekkinga í Árborg
 
25. mars 2011
6. bekkur: Heimsókn 6. bekkjar til BES
Kæru nemendur í 6. bekk Sunnulækjarskóla og foreldrar
Nemendur í 6. bekk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES) bjóða nemendum í 6. bekk í Sunnulækjarskóla- og Vallaskóla í heimsókn föstudaginn 25. mars klukkan 17-19 á Stað, Eyrarbakka. 6. bekkur BES skipuleggur heimsóknina í samvinnu við tengla og sjá þau um dagskrá. Farið verður í leiki og fleira skemmtilegt gert. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eiga skemmtilega stund með jafnöldrum sínum í Árborg.
Við munum hafa samband þegar nær dregur til að skipuleggja ferðir.
Kær kveðja
Tenglar 6. bekkjar.
 
1. mars 2011
1. bekkur: Kaffispjall
Við tenglarnir í 1.bekk ætlum að hittast á Kaffi krús þriðjudagskvöldið 1.mars kl. 20:00 og bjóða öllum foreldrum barnanna í 1.bekk að koma og spjalla saman með okkur um hvað hægt sé að gera með krökkunum. Vona að sem flestir geti komið, allar tillögur eru vel þegnar.
Kveðja, bekkjartenglar í 1. bekk
 
 
24. febrúar 2011
Sunnulækjarskóli í 1. sæti í Lífshlaupinu.
Til hamingju!!!
 
 
22. febrúar 2011
3. bekkur: Sundferð
Á morgun þriðjudaginn 22. febrúar kl. 17.30 er planið að skella okkur í sund í Sundhöll Selfoss!
Við viljum sjá alla krakka & sem flesta foreldra, forráðamenn eða systkini í fylgd þeirra. 
Athugið að reglur segja til um að börn yngri en 10 ára mega ekki fara ein í sund.  Hins vegar mega 15 ára og eldri vera með tvö börn yngri en 10 ára.  
Ætlum að hafa það skemmtilegt saman og ljúka Lífshlaupinu með stæl !!
                                        Kveðja,  bekkjartenglar 3. bekkjar
 
2. feb 2011
1.- 10.bekkur: Lífshlaupið 2. - 22. febrúar 2011
 
Sunnulækjarskóli tekur þátt í hvatningarleik grunnskóla sem heitir Lífshlaupið.
sjá nánar hér
 
 
27. jan 2011
4. bekkur: Vasaljósaferð
Fimmtudaginn 27.janúar n.k. ætlar 4. bekkur Sunnulækjarskóla að skella sér í vasaljósaferð um Þrastaskóg. Við leggjum upp frá Þrastalundi kl. 18:00 og reiknum með að ferðin taki um 1 klst.

Þó að það sé nú alveg að detta í kvöldmat (og kannski rúmlega það..)  þá gerum við stutt nestis-stopp. Þannig að allir sem vilja taka með sér létt nesti.

Kveðja,

bekkjartenglar í 4.bekk

Sunnulækjarskóla

 
26. jan 2011
3. bekkur: Kaffispjall
Kæru foreldrar/forráðamenn.
Okkur tenglunum í 3.bekk Sunnulækjaskóla langar að bjóða ykkur  á smá fund á Kaffi Krús miðvikudaginn 26. janúar kl: 20:30. Hugmynd fundarins er að foreldrar geti kynnst frekar og geti komið á framfæri skoðunum og hugmyndum varðandi ýmis mál eins og bekkjaskemmtanir og önnur mál hvað varðar skólann í vetur.
Vonumst til að sem flestir mæti.

Við hlökkum til að sjá ykkur.  Kveðja tenglar úr 3 Bekk.
 
18. jan 2011
5. bekkur: Spilakvöld
 
    Þriðjudaginn 18.janúar 2011 verður spilakvöld (félagsvist)
    hjá 5.bekk frá kl.18:30-20:30, nánar auglýst síðar.
 
 
 
 
16. des 2010
1. bekkur: Vasaljósaferð
Kæru foreldrar / forráðamenn
Við tenglar í 1.bekk ætlum að hóa saman börnum 1.bekkjar ásamt foreldrum/fylgdarmönnum í vasaljósaferð í Gesthúsaskóg næstkomandi fimmtudag 16.desember. Er stefnan sett á að hittast fyrir framan aðalinngang Sunnulækjarskóla klukkan 17:00 og ganga þaðan inní skóg.
Allir mæti með vasaljós og smá nesti í poka, t.d. piparkökur og kakó.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á fimmtudaginn.
Bestu kveðjur, tenglar 1.bekkjar
 
 
29. nóv 2010
2. bekkur: Vasaljósaskógarferð
Mánudaginn 29. nóvember n.k. ætlum við í skógarferð í Þrastaskóg með börnunum. Foreldrar fylgi börnum sínum og systkini eru velkomin með.  Við stefnum að því að hittast á bílaplaninu við Þrastalund kl. 17:30.  Þá förum við í stutta gönguferð um skóginn og inná flötina (tjaldstæðið) þar sem við borðum nesti.
 
Munið að vera klædd eftir veðri og taka með nesti t.d. heitt kakó og piparkökur og ekki má gleyma vasaljósi til að lýsa í myrkrinu. Stefnum að heimferð ca. kl. 19.
Vonumst til að sjá sem flesta og að við skemmtum okkur vel saman.
Með kveðju, bekkjartenglar í 2. bekk
  
28. nóv 2010
8. bekkur: Pizza og bíóferð
Fimmtudaginn 25. nóvember ætlum við að hittast á Hróa Hetti og fá okkur pizza og fara svo í bíó að  sjá  “Harry Potter og dauðadjásnin: hluti I”.
Við hittumst á Hróa Hetti kl. 17:30 og bíóið hefst svo kl. 20:00. Pizzahlaðborðið kostar 890,- og bíóið kostar 1350,- og og innifalið í bíóverðið  er miðstærð af popp og kók.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Kv Tenglar í 8.AVS og 8. ÞMB
 
 
 
23. nóv 2010
3. bekkur: Bekkjarkvöld
Ákveðið hefur verið að haldið verði bekkjarkvöld í Sunnulækjarskóla þriðjudaginn 23.nóv n.k. frá kl 17:30 til 20:00.  Í ár ætlum við að hafa náttfatapartý, spila Bingó, fara í leiki og fyrst og fremst hafa gaman saman.    
Boðið verður uppá að kaupa pizzu sneiðar á skemmtuninni. Foreldrar eru beðnir að skrá þátttöku á þar til gerðum lista sem mun liggja fyrir á komandi foreldrafundi.  Nemendur þurfa að taka með sér drykkjarföng en boðið verður uppá popp. 
 
Ps.  Tenglar taka að sér að skipuleggja þá viðburði sem eiga að vera á  hverju skólaári  en okkur þætti vænt um að ef þið hafið  einhver tök á að aðstoða okkur um kvöldið t.d við að afgreiða matinn, poppa, ganga frá eða annað að láta okkur vita. Þetta eru börn okkar allra og því þurfa allir að leggjast á eitt til að gera þessar skemmtanir sem eftirminnilegastar.
Kveðja tenglar í 3. Bekk.
 
19. nóv
6. Bekkur: Bekkjarkvöld
Kæru bekkjarfélagar núna er komið að fyrsta bekkjarkvöldi vetrarins.
Við ætlum að hittast í Sunnulækjarskóla föstudaginn 19. nóvember kl. 17:30-19:00.
Allir koma í náttfötum og með vasaljós ef þeir eiga. Við ætlum að fara í feluleik á svæðinu ykkar og borða síðan saman pizzu. Allir koma með eitthvað að drekka með sér og 500 kr. fyrir pizzu.
Við hvetjum foreldra til að koma með og skemmta sér með börnunum.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
                                    Tenglar 6. GG og GGu
 
4. nóv 2010 
1. bekkur: Sundferð
Hittumst hress og kát í sundi !
Fimmtudaginn 4. nóvember ætla krakkarnir í 1. bekk að hittast í sundi og skemmta sér saman. Áætlaður tími er milli 17 og 19 en það er enginn formleg mæting.  Krakkarnir hittast bara ofan í lauginni og taka að sjálfsögðu foreldra eða einhvern forráðamann með sér.  Vonandi komast sem flestir á þessum tíma.
Það eina sem þarf að greiða fyrir er sundgjald fyrir fullorðna fólkið.
Kveðja frá tenglunum.
 
 
29. okt. 2010
9. bekkur: Skautaferð
 
Það verður farið í rútu frá Sunnulækjarskóla kl. 16:00 föstudaginn 29.okt. í Egilshöll. Aðgangur að svellinu, leiga á skautum, og rúta 1600,-
Það er líka sjoppa á staðnum ef einhver vill versla sér nammi eða eitthvað. Heimferð er áætluð kl. 19:00  frá Egilshöll
Kveðja Tenglar
 
 
 
28. okt. 2010
Forvarnafundur
Á fræðslufundinn koma fulltrúi lögregluna, fulltrúi forvarnahóps flott fyrirmynd og fulltrúi sveitarfélagsins.
Málefni fundarins verða m.a. fíkniefni og áfengisneysla, forvarnastarf, foreldrarölt
Kæru Foreldrar og forráðamenn og allir þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þessi málefni.
Sýnum ábyrgð og fjölmennum. Fundurinn er öllum opinn því erindi fundarins varða alla í samfélaginu sem koma að uppeldi barna og unglinga.
Foreldrafélögin í Árborg
 
28. okt 2010
4. Bekkur Sunnulækjarskóla í sund!!
Fimmtudaginn 28. Október, kl 17-19, ætlum við í 4. bekk í Sunnulækjarskóla að leggja sundlaug Selfoss undir okkur !!
Sjáumst öll í sundi !!!!
Kveðja frá tenglum í 4.bekk
 
 
26.okt. 2010
1. Bekkur: Foreldrafundur á Kaffi Krús
 
Kæru foreldrar/forráðamenn. Okkur tenglunum í 1.bekk Sunnulækjaskóla langar að bjóða ykkur að mæta á Kaffi Krús þriðjudaginn 26. október kl: 20:30. Langar okkur tenglunum að hafa ykkur með í hugmyndum um starfið í vetur. Það er líka bara svo gaman að geta sett nöfn við andlit og börn. Svo er áræðanlega eitthvað sem við getum rætt á fundinum. Endilega mætum sem flest á þriðjudaginn. Við hlökkum til að sjá ykkur kveðja
Tenglar í 1.bekk       sjá fundargerð hér
 
 
19.okt. 2010
Tenglafundur
Fundur með öllum tenglum í Sunnulækjarskóla þriðjudaginn 19. október kl. 17.
Markmið fundarins er að segja stuttlega frá tenglastarfinu og aðstoða nýja tengla við að koma foreldrastarfinu af stað.