Viðburðir

  Um foreldrafélagið

  Fréttabréf

  Um skólaráðið

 
 

  Foreldrarölt

  Tenglar 

 
 
  Foreldrafundir:
 
  
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Um skólaráðið

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólastjóri hefur forgöngu um stofnun skólaráðs. Hann situr í skólaráði og stýrir starfi þess. Auk skólastjóra sitja í skólaráði tveir fulltrúar foreldra, tveir fulltrúar kennara, einn fulltrúi annars starfsfólks skólans, tveir fulltrúar nemenda og einn fulltrúi grenndarsamfélags eða viðbótarfulltrúi úr hópi foreldra valinn af öðrum fulltrúum skólaráðs. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveitarfélags um skólahald.
 
Fulltrúar foreldra í skólaráði 2011-2012

María Karen Ólafsdóttir
vordufell(hjá) simnet.is

Ólafur Unnarsson
olafuru(hjá)mmedia.is
 
Varamaður:
 
Halla Eygló Sveinsdóttir
halla(hjá)bssl.is

Ef þú vilt koma einhverju á framfæri við fulltrúa foreldra
vinsamlegast sendu þeim tölvupóst.

Sjá 
fundargerðir

Skólaráð:

  • fjallar um skólanámskrá, rekstraráætlun, starfsáætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið,
  • fjallar um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla og gefur umsögn áður en endanlegar ákvarðanir um þær eru teknar,
  • tekur þátt í að móta stefnu og sérkenni skóla og tengsl hans við grenndarsamfélagið,
  • fylgist með öryggi, húsnæði, aðstöðu, aðbúnaði og almennri velferð nemenda,
  • fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum,
  • fjallar um erindi frá skólanefnd sveitarfélags, foreldrafélagi, kennarafundi, almennum starfsmannafundi, nemendafélagi, einstaklingum, menntamálaráðuneyti, öðrum aðilum varðandi málefni sem talin eru upp í þessari málsgrein og veitir umsögn sé þess óskað,
  • tekur þátt í öðrum verkefnum á vegum skólanefndar að fengnu samþykki sveitarstjórnar.

Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla.