|
Lífshlaupið – Hvatningarleikur grunnskóla 2.- 22. febrúar 2011 Kæru foreldrar og forráðamenn Sunnulækjarskóli hefur ákveðið að taka þátt í hvatningarleik grunnskóla sem heitur Lífshlaupið og er hugmyndafræðin sú sama og í keppninni "Hjólað í vinnuna" sem mörg ykkar kannast við. 60 mínútur á dag Markmið verkefnisins er að fá sem flesta nemendur skólans til að hreyfa sig í 60 mínútur daglega á meðan átakið stendur yfir. Allir nemendur fá skráningarbók þar sem þau krossa við dagana sem þeim tekst að hreyfa sig í 60 mínútur. Í lok átaksins munum við kalla eftir bókunum og skrá hreyfingarnar rafrænt. Keppni milli skóla en einnig milli árganga Við keppum við aðrar skóla landsins um hver nær að skrá flesta daga en við munum einnig keppa á milli árganga innan skólans og er hér um mjög spennandi keppni að ræða þar sem yngri árgangarnir eiga ekki síður möguleika á að vinna en þeir eldri. Framlag hvers og eins telur Leikurinn er byggður upp þannig að framlag hvers og eins hjálpar til, hversu lítið sem það er. Fjöldi daga/ krossa sem við getum safnað og skráð er deilt með heildarfjölda nemenda í skólanum. Þess vegna munar um hvert spjald sem við fáum til baka þó svo að bara einn kross sé á spjaldinu. Allt er betra en ekkert! Skilafrestur er 23. febrúar! Við hvetjum alla foreldra til þess að vera með okkur í Lífshlaupinu, skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann í skólanum.Nánari upplýsingar er að finna á lifshlaupid.is . Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega sendið okkur tölvupóst á aframsunno@gmail.com .Sjá nánar á lifshlaupid.is
|
