|
Kæru foreldrar 1.bekkjar barna. Sendum hér smá samantekt eftir fyrsta hitting okkar foreldra á Kaffi Krús, en alls voru 10 mættir og áttum við gott og skemmtilegt spjall.
Bekkjarafmæli
Ræddum við um bekkjarafmælin og vorum við sammála um að halda okkur við 500 kr í gjöf á barn. Einnig töluðum við um hverjum ætti að bjóða og fannst okkur góð hugmynd að styðjast við bæklinginn "Saman gegn Einelti " (sjá hér) sem Foreldrafélagið gefur út. En þar kemur fram eftirfarandi klausa varðandi afmælin.
Ágæt regla er að bjóða öllum af sama kyni úr sama umsjónarhópi. Ef allir bjóða bara bestu vinunum , þá eru einhverjir sem fá sjaldan eða jafnvel aldrei afmælisboð. Afmæli getur verið gott tækifæri til að kynnast fleirum en nánustu vinum barnins. Það á ekki að dreifa afmælisboðskortum í skólanum og það er æskilegt að láta vita ef barn kemst ekki í afmæli. Bekkjarstarf
Margar góðar hugmyndir komu fram hvað hægt er að gera skemmtilegt saman börn og foreldrar og ætlum við að hafa það einfalt og skemmtilegt í vetur, aðalatriðið er að eiga stund saman með börnunum okkar og fá tækifæri til að kynnast hinum börnunum og foreldrunum.
Stefnan er tekin á sundferð saman (barn og foreldrar/fylgdarmaður ) fimmtudaginn 4.nóv milli kl 17-19. Þegar líða tekur á nóvember í kringum ca 20. þá langar okkur að fara í vasaljósaferð á Gesthúsasvæðið og kanna skóginn þar og gæða okkur svo á nesti saman en við munum senda auglýsingar þegar nær dregur.
Foreldrahittingur
Þar sem okkur fannst góð byrjun að hittast svona á kaffihúsi og spjalla og leggja línurnar fyrir veturinn stefnum við á annan svona foreldrahitting í byrjun næsta árs.
En látum þetta duga þangað til næst, hlökkum til að hitta ykkur í sundi í næstu viku. Kveðja Tenglarnir í 1. bekk. |