Öflugt foreldrastarf og sterk samstaða um grundvallarviðmið er besta forvörnin gegn hvers kyns vá, t.d. neyslu fíkniefna og óæskilegri hegðun. Ef foreldrar og forráðamenn nemenda í bekk eða skóla ná að stilla saman strengi hvað varðar meginviðmiðanir í uppeldismálum aukast líkur á árangri í skólastarfinu, bæði hvað varðar námsárangur og almenna velferð nemenda. (Úr aðalnámskrá grunnskóla)
Markmið félagsins eru að:
- styðja skólastarfið og efla tengsl heimilis og skóla
- efla samstarf og samstöðu foreldra innbyrðis
- koma á umræðu og fræðslufundum um uppeldis- og fræðslumál
- vinna að heill og hamingju nemenda Sunnulækjarskóla
- koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi starfsemi Sunnulækjarskóla
- styðja félags- og menningarstarf innan Sunnulækjarskóla
|
Eftirtaldir mynda stjórn foreldrafélagsins veturinn 2011-2012:
Linda Björk Sigurðardóttir, formaður lifsol(hjá)hotmail.com Anne B. Hansen, varaformaður smjordalir(hjá)simnet.is Óskar Gunnarsson, ritari oskar.gunnarsson(hjá)or.is Karen Guðmundsdóttir, gjaldkeri karen9(hjá)simnet.is |