Erla B. Axelsdóttir er fædd í Reykjavík 1948 en sleit barnsskónum í Kópavogi.
Erla stundaði nám við Myndlistarskólann í Reykjavík og síðar í Skidmore, Saratoga Springs. N.Y. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1979 og þá næstu á pastelmyndum sínum í Ásmundarsal 1983. Olíuverk sýndi Erla í fyrsta skiptið í Norræna húsinu árið 1984. Síðan þá hefur hún haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis.
Erla var ein af stofnendum Art-Hún gallerís og vinnustofa sem starfrækt var í tólf ár. Art-Hún var fyrsta starfsemi sinnar tegundar hér á landi þar sem listamenn voru með sínar vinnustofur og gallerí á sama stað og gestum gafst kostur á að sjá listamennina við störf.
Árið 2000 fékk Erla afnot af Kjarvalsstofu, á Cité des International Arts´, í París, í tvo mánuði. Síðan þá hefur hún dvalið tvisvar sinnum á Cité og haft afnot af vinnustofu þar. Árið 2004 hélt hún sýningu á verkum sínum í sýningarsal Cité.
Að dvelja í París og kynnast listamönnum þar hefur gefið Erlu ómældan styrk og frelsi. Á gangi um eitt af mjóstrætum Parísar kom hún auga á gamla vigt með lóðum. Lóðin kölluðu á hana. Fyrir henni voru þau sem mannverur. Þau stóðu þarna tilbúin að vega og meta, vera til staðar og segja til, hvers virði er. Bernskuminningin, náttúrufegurðin, birtan, landið, kærleikurinn og gáskinn. Erla keypti vigtina og lóðin hafa haldið henni félagsskap á vinnustofunni og leynt og ljóst fléttast með inn í verkin. Þau hafa tekið á sig persónulegar myndir og sýna af sér gleði og ábyrgð í nálægð við munstur og form náttúrunnar.
Viðfangsefni Erlu hafa verið fjölbreytileg. Áður fyrr fékkst hún við að mála landslag og fólk. Vann hún þá gjarnan úti við, skissaði og skynjaði, og skilaði oftar en ekki upplifuninni í málverk þegar á vinnustofuna var komið. Verk síðustu sýninga sýna meiri nálgun við náttúruna og nærmyndir fléttast saman við myndir úr huganum. Tæknin er látin ráða og hlutirnir gerast, birtast óvænt og fá gildi. Nálægðin við landið skynjar hún í því umhverfi sem hún þekkir best, og er þakklát fyrir. “Vellíðanin í náttúrunni á Miðdalsheiði kallar nú fram minningar frá barnæsku. Ófyrirséðar hugdettur koma til mín og leiða mig á nýjar brautir. Gylltu verkin eru tákn þess dýrðarljóma sem bernskuminningin lifir í. Í olíuverkunum leyfir ég birtuupplifunum úr náttúrunni að fléttast við söguna".
Erla er meðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og Félagi íslenskra myndlistarmanna (FÍM).
|
|
|