In English



Gerast aðdáandi á Facebook

Uppfært
15. ágúst 2011

Tölvupóstur:
erla@erlaaxels.com

Á döfinni


                 Á slóðum mótífanna
                 Erla Axels opnar sína 23. einkasýningu 1. október nk. í Listaseli við Selvatn.
                 Sýningin er á slóðum mótífanna þar sem Erla vinnur flest sín verk út frá náttúrunni í nágrenni Selvatns.
                 Sýningin samanstendur af verkum unnum á olíu á striga og blandaðri tækni. Á sýningunni eru 48 verk öll unnin á sl. tveim árum.
                 Sýningin verður opin frá kl 14:00 til 18:00: 1.,2.,6.,7.,8., og  9. október 2011.
  • Heimasíðan fær nýtt og frísklegt útlit í október 2009. Mikið af nýjum myndum.
  • Erla Axels - nú á Facebook með aðdáendasíðu.  Sjá hér.
  • Vinnustofusýning. Helgina 26. og 27. september 2009. kl. 14.00-18.00 verður opin vinnustofa í Listaseli við Selvatn. Verið velkomin á vinnustofusýningu mína á nýjum olíuverkum og verkum unnin í blandaða tækni á pappír. Leiðarlýsing í Listasel verður send væntanlegum sýningargestum.

  • Vinnustofusýning. Helgina 18. og 19. október 2008. kl. 14.00-18.00 verður opin vinnustofa í Listaseli við Selvatn. Verið velkomin á vinnustofusýningu mína á nýjum verkum unnin í blandaða tækni á pappír. Leiðarlýsing í Listasel verður send væntanlegum sýningargestum.

  • Grafíksafn Íslands, Tryggvagötu 17, hafnarmegin - sýning opnuð laugardaginn 29. mars 2008 kl. 14:00 og stendur til 13. apríl 2008. Sýningin samstendur af verkum unnin í blandaða tækni á pappír. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14 til 18. Sjá myndir frá opnun hér.

  • Opin vinnustofa. Helgina 20. og 21. október n.k. kl. 13.00-18.00 verður opin vinnustofa í Listaseli við Selvatn. Verið velkomin á vinnustofusýningu mína á nýjum olíuverkum og verkum unnin í blandaða tækni á pappír. Skráning á sýninguna hér. Leiðarlýsing í Listasel verður send væntanlegum sýningargestum. Myndir frá opnu húsi hér.

  • Kirkjuhvoll - sýning opnuð 7. júlí 2007 á verkum unnin í blandaða tækni á pappír. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga, frá kl. 15-18 (lokað laugardaginn 14. júlí). Sýningin stendur til 22. júlí.

  • Listasel var opnað 7. júní 2007 og var góður rómur gerður bæði að húsi og verkum.

  • Nú hefur Erla reist sé hús með góðri vinnuaðstöðu í nálægð við sumarhúsið sitt á Miðdalsheiði. Undanfarin

  • sumur hefur Erla málað í gamla gróðurhúsinu sem nú er orðið lekt og ónothæft.