Navigation

1204days since
Staðlota NKN

Rafræn ferilmappa og samvinnusvæði

Ímyndaðu þér einfalda möppu, með hörðum eða mjúkum spjöldum. Í hana geturðu sett efni sem þú hefur búið til eða fengið annars staðar frá. Mappan getur verið safnmappa, sýnimappa, mappa fyrir nám, kennslu eða fyrir lífshlaupið og starfsferilinn.

Hvernig bý ég til rafræna ferilmöppu?
sjá nánari skýringar á http://flickr.com/photos/rscnorthwest/2755824087/

Rafræn ferilmappa getur verið heimasniðin, eins og þessi, CMS sem maður hýsir sjálfur eða skóli manns eins og  ELGG eða Mahara eða hluti kerfis, eins og RCampus - http://www.rcampus.com/index.cfm. Nú ef allt þetta er of flókið er einnig hægt að búa til einfalda glærusýningu með myndum, hlekkjum og öðru sem sýnir verk sem hún á að halda utan um.

Þetta svæði
er aðallega notað til samvinnu að gefnu tilefni (ad hoc). Efni sem hér birtist verður ekki endilega haldið til haga heldur annaðhvort flutt til frekari vinnslu eða einfaldlega eytt. Það sem hér birtist má nota, breyta, dreifa svo framarlega sem höfunda er getið og efni byggt á grunni þess fylgir sama heimild.

Efnið má nota í atvinnuskyni eingöngu ef sótt er um leyfi til þess sérstaklega hjá höfundum þess. Sendu póst á carlos.a.ferrer (at) gmail.com og elfaaustmann (at) gmail.com.