|
----------------------------------------------------------
Myndlistarsýning Mariusar Borns - sjá Facebooksíðu.
----------------------------------------------------------
Bókabúgí - sjá Facebooksíðu safnsins.
-----------------------------------------------------------
Listasafn Árnesinga
og Bókasafnið í Hveragerði bjóða til samveru í Listasafninu 1. desember kl. 20 Bókasafnið í Hveragerði og Listasafn Árnesinga viðhalda þeirri hefð að bjóða upp á lestur úr nýjum bókum í Listasafninu 1. desember með tónlistarívafi, kertaljósum og piparkökum. Höfundar lesa úr fjórum nýjum skáldsögum sem eru Bónusstelpan eftir Rögnu Sigurðardóttur, Meistaraverkið og fleiri sögur eftir Ólaf Gunnarsson, Trúir þú á töfra? eftir Vigdísi Grímsdóttur og Valeyrarvalsinn eftir Guðmund Andra Thorsson. Þá munu einnig Björg Einarsdóttir og Hildur Hákonardóttir lesa úr sínum köflum í bókinni Á rauðum sokkum - baráttukonur segja frá sem Olga Guðrún Árnadóttir ritstýrði. Ungur fiðluleikari, Irena Silva Roe mun brjóta upplesturinn upp með því að leika nokkur lög á fiðlu.
Á heimasíðu listasafnsins www.listasafnarnesinga.is má finna nánari upplýsingar um bækurnar og höfunda þeirra. Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á kaffi og piparkökur. ------------------------------------------------------- Bókasafnsdagurinn 14. apríl 2011
Dagskrá Bókasafnsins í Hveragerði
Allan daginn, frá kl. 13 til 19:
13:30 Hvernig plöstum við bækur? Maria Anna sýnir handbragðið. 14:00 Gegnir.is - örnámskeið í umsjá Hlífar: Mínar síður, leit eftir safni. 14:30 Sögustund fyrir börn. 15:00 Hvernig plöstum við bækur? Maria Anna sýnir handbragðið.
15:30 Gegnir.is - örnámskeið í umsjá Hlífar: Mínar síður, leit eftir safni.
16:00 Sögustund fyrir börn. 16:30 Bækur sem við mælum með: Hlíf og Anna Kristín spjalla um barnabækur. 17:00 Bækur sem við mælum með: Hlíf og Maria Anna spjalla um bækur á ensku fyrir unglinga og fullorðna. 17:30 Bækur sem við mælum með: Anna Kristín spjallar um eldri bækur í uppáhaldi. 18:30 Dregið úr réttum lausnum í getraunum og verðlaun afhent.
Boðið verður upp á kaffi, te og safa í tilefni dagsins og allir safngestir fá BÓKAMERKI.
---------------------------------------------------------------
23. mars 2011
Nú er löngu komið nýtt ár og við höfum ekki verið duglegar að setja inn á síðuna. Reynum að bæta úr því.
Við bendum ykkur á að skoða myndir frá öskudeginum, en þá komu yfir 180 krakkar í safnið og sungu fyrir okkur og við tókum myndir af allflestum.
Einnig ætlum við smátt og smátt að setja inn fleiri myndir, bæði frá þessu ári og eldri myndir, þar sem við erum nú búnar að læra að setja inn myndasýningar og myndbandsbúta.
Allir eru velkomnir í safnið til að finna sér lesefni eða önnur gögn til að taka með heim, lesa blöð og bækur, læra, vinna á fartölvuna sína (frítt þráðlaust net), afla upplýsinga o.s.frv.
Við minnum á spil og fleira á þriðjudögum kl. 16:30-18:00.
-------------------------------------------------------------
Starfsfólk bókasafnsins óskar ykkur öllum gleðilegs árs
Desemberdagskrá Bókasafnsins
---------------------------------------------------------------------------
„I klarhed og damp II / Í heiðríkju og móðu II“ Ljósmyndasýning Anne Marie Sørensen verður opnuð í bókasafninu föstudaginn 5. nóvember kl. 18:00.
Allir velkomnir. Safnahelgi á Suðurlandi 2010
Dagskrá í Bókasafninu í Hveragerði
Safnið er opið föstudag kl. 13-19, laugardag kl. 11-17 og sunnudag kl. 13-17. Kaffi á könnunni alla helgina.
Föstudagur 5. nóv.
Kl. 11:00 Harði, stóri heimur! Hvað viltu mér? Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur og Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður flytja dagskrá í tali og tónum með nokkrum kynngimögnuðum ljóðum Jóhannesar úr Kötlum. Dagskráin verður í Grunnskólanum í Hveragerði og er eingöngu fyrir elstu nemendur Grunnskólans. Bókasafnið í Hveragerði Dagskráin er í boði Bókasafnsins í Hveragerði í tilefni Safnahelgar á Suðurlandi.
Kl. 18:00 Opnun ljósmyndasýningarinnar „I klarhed og damp II / Í heiðríkju og móðu II“ Anne Marie Sørensen ljósmyndari (www.photoriet.dk) sýnir listrænar landslagsljósmyndir teknar á Íslandi s.l. þrjú ár. Sölusýning. Einnig verða portrettmyndir af ungu tónlistarfólki sýndar á skjá. Boðið verður upp á tónlist og hressingu.
Laugardagur 6. nóv.
Kl. 11:00-17:00 Sýning á ritverkum og úrklippusafni Bjargar Einarsdóttur. Björg hefur aðallega skrifað um konur og hluti af úrklippusafni hennar tengist kvennabaráttunni á Íslandi. Tilefni sýningarinnar er 85 ára afmæli Bjargar
Ljósmyndasýningin „I klarhed og damp II / Í heiðríkju og móðu II“ á veggjum og skjá Anne Marie Sørensen sýnir listrænar landslagsljósmyndir frá Íslandi - sölusýning. Portrettmyndir af ungu tónlistarfólki á skjá.
kl. 14:00-15:00 Björg Einarsdóttir verður í safninu og spjallar við gesti um verk sín og sýninguna.
Kl. 15:30-16:30 Anne Marie Sørensen verður í safninu og spjallar við gesti um sýninguna.
Sunnudagur 7. nóv. kl. 13:00-17:00
Ljósmyndasýningin „I klarhed og damp II / Í heiðríkju og móðu II“ á veggjum og skjá Listrænar landslagsljósmyndir Anne Marie Sørensen frá Íslandi - sölusýning. Portrettmyndir af ungu tónlistarfólki á skjá. Sýningin stendur til 4. desember. Sýning á ritverkum og úrklippusafni Bjargar Einarsdóttur.
Björg hefur aðallega skrifað um konur og hluti af úrklippusafni hennar tengist kvennabaráttunni á Íslandi. Tilefni sýningarinnar er 85 ára afmæli Bjargar. Sýningin stendur til 21. nóvember.
Dregið verður í sumarlestrarhappdrættinu á Blómstrandi dögum, nánar tiltekið sunnudaginn 22. ágúst á fjölskylduskemmtun í Lystigarðinum sem hefst kl. 14:00. Að venju eru góðir vinningar.
Sumarlestrinum er lokið og við viljum gjarna fá að skoða Lestrardagbækurnar hjá öllum sem tóku þátt í honum. Margir eru búnir að koma með bækurnar til okkar, en við viljum sjá fleiri. Við teljum lesnar bækur og blaðsíður og svo eiga örugglega einhverjir eftir að fá límmiða og HAPPDRÆTTISMIÐA. Svo þá er bara að drífa sig fyrir sunnudaginn.
Á Blómstrandi dögum er opið laugardag kl. 11-17 og sunnudag kl. 13-17.
----------------------------------------------------------------
Núna í júní eru þrjár sýningar í gangi:
Þorkell Þórisson (Keli) sýnir nokkur olíumálverk af ýmsum toga og frá ýmsum tímum. Sýningin stendur til 12. júlí.
Katarzyna Perlak sýnir veggspjöld af klippimyndum sem hún gerði á meðan hún dvaldi í Varmahlíðarhúsinu, einnig nokkrar gosmyndir. Sýningin stendur út júní.
Ljósmyndasýningin Maður er nefndur frá Héraðsskjalasafni Árnesinga er m.a. sett upp til að reyna að nafngreina fólkið á myndunum. 5 myndir frá Hveragerði.
---------------------------------------------------------------
Á eftir Maríu og Unni sýndi Gréta Berg portrettmyndir.
----------------------------------------------------------------------------------------
Ný sýning í bókasafninu. Tengdamæðgurnar María Halldórsdóttir og Unnur Þormóðsdóttir sýna málað postulín og flísar. Á myndinni er dóttir Unnar, Ásdís Mjöll með myndina sem hún málaði sjálf.
Dögg og Eyrún afhenda Íslenskuspilið (sjá frétt á síðunni).
Sýning á hannyrðum Guðrúnar Þórðardóttur stendur til 29. janúar. Einnig sýning á "servíettumyndum" Braga Einarssonar í Eden. Starfsfólk bókasafnsins vonar að lánþegar og safngestir hafi átt ánægjulega jólahátíð og óskar þeim gæfuríks nýs árs.Haustið 2004 flutti bókasafnið í nýtt húsnæði í verslunarmiðstöðinni í Sunnumörk. Þar er það í leiðinni þegar fólk gerir matarinnkaupin eða leitar annarrar þjónustu í húsinu. Safnkostur er fjölbreyttur og kappkostað er að veita góða þjónustu. Í safninu er boðið upp á útlán bóka, tímarita, hljóðbóka, tónlistar- og mynddiska. Ennfremur upplýsingaþjónustu, millisafnalán, aðstöðu til lestrar og spjalls og aðgengi að tölvum ásamt þráðlausu neti. Safnið býður einnig upp á sumarlestur, getraunir og sögustundir fyrir börn, sýningar og viðburði, s.s. upplestur, bókmenntakynningar og prjónakaffi.
Það sem veitir safninu sérstöðu og dregur að fjölmarga gesti er gríðarstór jarðsprunga sem er sýnileg gegnum gler í gólfi safnsins. Hún höfðar jafnt til innlendra sem erlendra ferðamanna, jarðfræðinema og skólabarna. |
|


