Undirbúningur fyrir foreldrahlutverkið
Námskeiðið ,,Barnið komið heim" er forvarnarmiðað verkefni sem byggt er á vísindalegum grunni. Rannsóknir hafa sýnt að ein besta forvörnin í geðheilbrigðismálum er að gera foreldra betur í stakk búna til að takast á við foreldrahlutverkið. Allt að helmingur verðandi mæðra þjáist af kvíða og þunglyndiseinkennum. Rannsóknir sýna að tilfinningaþroski barns mótast af samskiptum foreldra við það og ekki síst þátttöku föður í lífi þess fyrstu árin. Hæsta tíðni sambúðarslita á Íslandi er á fyrstu árum eftir barnsburð.
Algengt er samkv. rannsóknum að feður séu óöryggir í sínu fyrsta foreldrahlutverki. Verðandi feður þurfa fræðslu til að takast á við þetta óöryggi og til að axla ábyrgð á uppeldi barna sinna. Verkefnið leiðbeinir foreldrum sem eru á leið inn í foreldrahlutverkið og vilja byggja upp sterka og heilbrigða fjölskyldu. Bæði feður og mæður sem hafa tekið þátt í námskeiðinu hafa öðlast meira innsæi í þarfir barna sinna og bregðast betur við sem umönnunaraðili. Þetta átti sérstaklega við um feður. Höfundar námskeiðsins, þau John og Julie Gottman, eru líklega eitt þekktasta meðferðarpar okkar tíma. Þau telja að mestu sé hægt að koma til leiðar í fjölskyldum í upphafi foreldrahlutverksins.
Í júní sl. gerði ÓB-ráðgjöf samning við Kópavogsbæ um að verðandi foreldrum og foreldrum ungra barna verði boðið á námskeiðið þeim að kostnaðarlausu. Kópavogsbær stendur straum af kostnaði við námskeiðin en framkvæmd þeirra er í höndum ÓB-ráðgjafar. Samstarfsaðilar eru heilsugæslustöðvar og kirkjur í Kópavogi. Allar sex þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar sóttu um styrk í Forvarna-og framfarasjóð Reykjavíkurborgar fyrir þátttöku í verkefninu á sama hátt og Kópavogsbær. Reykjanesbær ætlar að bjóða námskeiðið.
Eitt námskeið er alls tólf klukkustundir og er þrennskonar fyrirkomulag í boði. A) Sex klukkustundir á dag í tvo daga. B) Þrjú skipti fjórar klukkustundir í senn. C) Sex skipti tvær klukkustundir í senn.
"Hvað varðar foreldrafærninámskeið er árangur þessa námskeiðs sá besti sem sýnt hefur verið fram á fram að þessu. Eins og nefnt hefur verið er námskeiðið þegar viðurkennt, því vísindalegur bakgrunnur þess er ótvíræður." Sjá nánar í umsögn Ólafs Bjarnasonar læknis, sérfræðings í geðlækningum
"Ekkert aðgengilegt námskeið er til um viðfangsefnið, því tel að ,,Barnið komið heim”, námskeiðið eftir dr. John Gottman sé mikilvægt innlegg fyrir verðandi foreldra hér á landi." Sjá nánari í umsögn Stefaníu Arnardóttur hjúkrunarfræðings
Verkefnið sameinar helstu áherslur aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að styrkja stöðu barna og ungmenna og þeim áherslum sem fram koma í nýju jafnréttisfrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Eftirfarandi var haft eftir formanni nefndar ráðuneyta um framkvæmd aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að styrkja stöðu barna og ungmenna eftir ráðstefnu um foreldrafærni þann 17. mars s.l. Aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar tekur m.a. mið af tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins um stefnu til eflingar foreldrafærni, en tilgangurinn með þeim tilmælum er að fyrirbyggja og vinna gegn líkamlegum refsingum á börnum.
,,Þessi þjónusta (foreldrafærnifræðsla) ætti að vera almenn og tiltæk foreldrum, ekki síst þeim sem eru að eignast sitt fyrsta barn. Fyrir það fólk ætti hún að vera án endurgjalds og ætti ekki síst að beinast að þörfum feðranna". Þjónustan sem formaðurinn vitnar til er ekki í boði á Íslandi í dag en umrætt námskeið uppfyllir þessa þörf.
Undanfarin ár höfum við fylgst með rannsóknum dr. Arthur's Rolnick. Hann var prófessor við hagfræðideild háskólans í Minnesota. Deildin er ein af bestu rannsóknardeildum í heiminum. Rolnick heldur því fram að engin fjárfesting sé samfélagi betri en í fjölskyldum 0-5 ára barna – fjármagnið skili sér sextánfalt. Rolnick segir að einungis eigi að nota úrræði sem eru gagnreynd (evidence based) og sýnt hefur verið fram á virkni í rannsóknum.
Um ÓB –ráðgjöf. Námskeið okkar eru miðuð við að uppfræðsla og þjálfun nýrra foreldra sé á þann veg að koma megi í veg fyrir skakkaföll eða áföll við tengslamyndun eða aðra mikilvæga þroskaþætti á þessu mikilvægasta aldurskeiði barnsins. Það að foreldrar standa jöfn að stofnun og umönnun fjölskyldunnar leggur grunnin að heimsmynd barns sem er þannig að báðir forerdrar taka jafnan þátt í lífi þess og barnið lærir af eigin reynslu að jafnrétti og jöfn aðkoma er sjálfsagður hluti af starfssemi sérhvers heimilis. Menntamálanefnd alþings hefur styrkt starfið frá árinu 2003. Aðstandendur ÓB-ráðgjafar hafa staðið fyrir fræðslu fyrir foreldra frá árinu 1998, m.a. fræðslu fyrir foreldra í Reyjanesbæ árin 1998 -2001. Í dag sækja 60% foreldra þar í bæ slíka fræðslu.
Allar frekari upplýsingar gefa: Ólafur Grétar Gunnarsson sími 897 1122 ogg@obradgjof.is Bjarni Þórarinsson sími 860 1957 bthor@obradgjof.is
Virðingarfyllst f.h. ÓB-ráðgjafar Ólafur Grétar Gunnarsson & Bjarni Þórarinsson |