Um ÓB-ráðgjöf

Árið 2002 stóð ÓB- ráðgjöf fyrir ráðstefnu um foreldrafærni í samstarfi við KHÍ, Barnaverndarstofu og Heimili og skóla. Þar kynnti dr. Jean Clarke fræðsluefnið Að alast upp aftur, annast okkur sjálf, annast börnin okkar. Á ráðstefnunni var ákveðið að bjóða þjálfunarnámskeið fyrir fagfólk. Árið 2003 og 2004 sóttu 48 fagaðilar þjálfun hjá dr. Clarke. Félagsþjónustan í Reykjavík og Mosfellsbæ eru meðal þeirra sveitarfélaga sem nota námskeiðið. Námskeiðið er í fullkomnu samræmi við hugmyndir Evrópsku ráðherranefndarinnar um foreldrafærni.

Árið 2004 kom út bókin Hvað mikið er nóg? Jarðbundinn leiðarvísir að heilbrigðu uppeldi í stað ofdekurs eftir dr. Jean Clarke, dr. Connie Dawson og dr. David Bredehoft. Bókin er byggð á þremur rannsóknum sem stóðu yfir í 7 ár á 1200 fullorðnum einstaklingum sem upplifðu sig hafa verið ofdrekraðir sem börn. Frá 2005 hafa verið unnar þrjár rannsóknir til viðbótar um ofdekur með þátttöku fleiri fræðimanna. 

Hugsað um barn er forvarnarverkefni fyrir unglinga. Í verkefninu er vakin athygli á ábyrgðinni sem fylgir kynlífi og ábyrgðinni sem fylgir því að vera foreldri.

Aðlögun að foreldrahlutverki er tveggja eininga áfangi fyrir framhaldsskólanema sem kenndur hefur verið í Menntaskólanum í Kópavogi í samstarfi við Heilsugæsluna í Kópavogi. Skólinn fékk jafnréttisverðlaun Jafnréttisráðs árið 2007. Áfanginn verður í boði áfram og er unnið að framhaldsáfanga.

Frá árinu 1998 hefur verið haldið foreldrafærninámskeið fyrir foreldra 0 - 6 ára barna. Það var þróað af Family Caring Trust í Bretlandi og hefur verið þýtt á fjölda tungumála. Við vitum ekki um neitt evrópskt foreldrafærninámskeið sem náð hefur eins mikilli útbreiðslu. Höfundar námskeiðsins eru hjónin Michael og Terri Quinn, sem bæði eru með meistaragráðu í samfélagsþróun og fjölskylduráðgjöf. Námskeiðið hefur verið  haldið í Hafnarfirð, Kópavogi, Reykjanesbæ og í Reykjavík.

Ólafur Grétar Gunnarsson lauk þriggja ára námi í sálfræðilegri ráðgjöf (counselling and psychotherapy) frá Spectrum Institute í Bretlandi árið 1999.

Bjarni Þórarinsson lauk tveggja ára námi í sálfræðilegri ráðgjöf (counselling and psychotherapy)  frá Spectrum Institute árið 1997.

Í Bretlandi auk annarra Evrópulanda hefur nám í sálfræðilegri ráðgjöf og meðferð (counselling og psychotherapy) verið að þróast á undanförnum áratugum, bæði innan einkaskóla og í háskólum. Hér á Íslandi er þessi námsleið lítið þekkt þar sem sambærilegt nám hefur ekki verið í boði. Einstaklingar með slíkt nám starfa víða innan breska heilbrigðis-og menntakerfisins. Óafur og Bjarni eru Certified Gottman Educators.


Viðtal við Ólaf Grétar Gunnarsson hjá ÓB-ráðgjöf í jólablaði Víkurfrétta

Hafa samband