Nokkrir punktar um efni námskeiðsins

Markmið námskeiðs:

Að læra við hverju er að búast með tilkomu foreldrahlutverksins.

Að læra hvernig hægt er að styrkja vináttuna, kynlífið og hæfnina til að leysa ágreining.

Að læra um þroska barna og að vera samstillt í foreldrahlutverkinu.

 

Á námskeiðinu læra hjón/pör að:

Efla vináttu við maka.

Leysa ágreining á árangursríkan hátt.

Leyfa feðrum að taka virkan þátt í umönnun ungbarna.

Styrkja uppbyggilega tengslamyndun og samskipti ungbarns og foreldris.

Þekkja sálrænar og tilfinningalegar þarfir barna sinna.

 

Gottman færir ykkur þekkingu og aðferðir til að geta staðið ykkur vel í foreldrahlutverkinu og forðast mistök. Því fylgir óhjákvæmilega álag en það skiptir miklu máli hvernig tekist er á við álagið. Á Barnið komið heim námskeiðinu eru ráð til að viðhalda rómantísku nándinni, jafna ágreining og skapa ánægjulegar og heilbrigðar hefðir í fjölskyldunni fyrir framtíðina.


Algengar spurningar fyrir skráningu:

Sp.       Get ég komið á námskeiðið ein/einn? Maka mínum langar ekki  með?
Svar.    Námskeiðið er ekki ætlað einstaklingum. Verkefnin eru ætluð báðum aðilum í sambandinu.
Sp.       Get ég komið með barnið mitt?
Svar.    Börn á fyrsta aldursári eru velkomin með foreldrum sínum og sjá þeir um umönnun þeirra á meðan á námskeiðinu stendur.

Sp.       Get ég tekið þátt í aðeins hluta námskeiðsins?

Svar.    Nei. Gert er ráð fyrir að pör sæki allt námskeiðið.  Námsefnið sem farið er yfir styrkir hvort annað og er því mikilvægt að taka þátt í því öllu.


Umsagnir þátttakenda sem sótt hafa námskeiðið erlendis:


Einu sinni enn langar mig að þakka fyrir þetta frábæra námskeið.
Við lærðum svo mikið!

Ég mæli með því að nýbakaðir foreldrar sæki námskeiðið Barnið komið heim. Okkur var bent á það af hjúkrunarfræðingnum okkar og erum svo ánægð  með að hafa farið eftir hennar ráðleggingum. Við munum örugglega mæla með því við vini okkar.

Upplýsingarnar og námsefnið er frábært. Við erum svo ánægð með að námsefnið er grundvallað á rannsóknum. Það eru svo mörg námskeið sem eru það ekki. Verkefnavinnan er mikilvægur þáttur í því að læra námsefnið.


Ég er svo ánægð með að við ákváðum að fara á námskeiðið. Verðandi föður fannst hann skilinn svolítið útundan og ég var ekki að gera honum lífið auðveldara. Nú viðurkennum við bæði  mikilvægi hlutverka okkar hvors fyrir sig sem foreldrar.

Þættir sem fjallað er um á námskeiðinu:

1. Að verða foreldrar.
2. Látum töfrana haldast eftir að við erum orðin foreldrar.
3. Að hafa stjórn á streItu og ágreiningi.
4. Börn og foreldrar: Viðkvæmt samband.
5. Tilfinningaleg samskipti og börn.
6. Að skapa sameiginlega arfleifð fjölskyldunnar.

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Bjarni Þórarinsson, Ólafur Grétar Gunnarsson og Valgerður Jónsdóttir. Þau eru Certified Gottman Educators.

Bjarni og Ólafur eru fjölskylduráðgjafar og eru með stofur. Valgerður er náms- og starfsráðgjafi, sérkennslufræðingur og fv. skólastjóri.


Meira um námskeiðið