Barnið komið heim námskeiðið er byggt á sálfræði- og kennslufræðilegum rannsóknum og prófunum og er fyrir barnshafandi pör og foreldra ungra barna


Námskeiðinu Barnið komið heim er ætlað að hjálpa væntanlegum foreldrum og foreldrum ungabarna, með aukinni þekkingu, að öðlast nauðsynlega hæfileika til að takast á við þær breytingar sem verða í sambandinu með tilkomu barns. Lögð er áhersla á að efla vinatengsl og nánd í sambandinu, að stjórna ágreiningi , að vera samstillt í uppeldishlutverkinu, þekkja grundvallaratriði í þroska barna og að vita hvert hægt er að leita eftir stuðningi og ráðgjöf þegar þörf er á.

Þeir sérfræðingar sem hafa kynnt sér námsefni „Barnið komið heim“ hérlendis telja vísindalegan bakgrunn þess ótvíræðan. Jafnréttisráð er þeirrar skoðunar að með námskeiðinu sé unnið að auknu jafnrétti. Úttekt Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar bendir til þess að þátttakendur á námskeiðinu séu almennt ánægðir með námskeiðið en þeir gáfu því meðaleinkunnina 4,4 af 5 mögulegum. Þátttakendur eru bæði ánægðir með kennara námskeiðanna og efni. Þátttakendur eru einnig beðnir að meta hvað þeir hafi tileinkað sér af fræðslu hvers dags, sem einnig kemur nokkuð vel út. Sama niðurstaða kemur fram í lokaverkefni félagsráðgjafanemanna Dagbjartar Rúnar Guðmundsdóttur og Daggar Guðnadóttur í BA námi í félagsráðgjöf nú í vor. 

Námskeiðið er fimmtán klukkustundir með kaffi- og matarhléum. Kennt tvo daga í röð, laugardag og sunnudag frá kl. 10:00 - 17:30.  

Leiðbeinendur  á námskeiðinu eru Hera Ó. Einarsdóttir félagsráðgjafi, Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskylduráðgjafi og Valgerður Snæland Jónsdóttir náms- og starfsráðgjafi. Þau eru viðurkenndir Gottman leiðbeinendur.

Nánari upplýsingar um námskeiðið veitir Ólafur Grétar í ogg@obradgjof.is í síma 897-1122.

Höfundar námskeiðsins, hjónin og sálfræðingarnir John og Julie Gottman, eru í forystusveit á heimsvísu í vísindarannsóknum á hjónabandinu, parasamböndum og fjölskyldunni. Rannsókn sem birt var árið 2007 sýnir að af þeim hjónum/pörum sem sóttu Barnið komið heim námskeiðið upplifa aðeins 22,5% (í stað 67%) para að gæði parasambandsins minnkaði eftir fæðingu barns. Önnur jákvæð niðurstaða er að bæði feður og mæður sem sóttu námskeiðið voru næmari fyrir þörfum barnanna og brugðust betur við þeim. Þetta átti sérstaklega við um feðurna. Börnin sýndu einnig merki um minni streitu og brostu meira heldur en börn para sem ekki sóttu námskeiðið.

Jafnréttisráð styður námskeiðið

Jafnréttisráð kynnti sér á árinu 2009 námskeiðið Barnið komið heim, sem ÓB ráðgjöf hefur haldið fyrir verðandi og nýorðna foreldra. Jafnréttisráð fagnar þeirri hugmyndafræði um virka þátttöku beggja foreldra í umönnun barnsins sem unnið er út frá á námskeiðinu. Ráðið er þeirrar skoðunar að með því sé unnið að auknu jafnrétti, jafnari ábyrgð foreldra í millum og aukinni gagnkvæmri virðingu beggja kynja. Slíkt stuðli jafnframt að farsæld barnsins og fjölskyldunnar í heild. Þess vegna styður Jafnréttisráð þarft framtak ÓB ráðgjafar og hvetur foreldra til að nýta sér námskeiðið. 

Kæru vinir!
 
Ég vildi aðeins segja ykkur frá foreldranámskeiði sem við Halli höfum sótt hjá ÓB-ráðgjöf. Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar í samvinnu við heilsugæslu halda 'Barnið komið heim' námskeiðið............. áframhald

Ég er nýbökuð amma og báðir drengirnir mínir tóku þátt í námskeiðinu  BARNIÐ KOMIÐ HEIM. Ég sá strax hvað námskeiðið hafði sterk áhrif á þá. Þeir voru áhugasamir að mæta í hvern einasta tíma ásamt sínum kærustum og eftir að börnin fæddust þá eru þeir fullir  af gleði, öruggir í sínu hlutverki og taka fullan þátt í umönnun barnsins. Ég mæli með að námskeið eins og þetta eigi að reka í tengslum við allar heilsugæslustöðvar  á landinu og styrkja þannig  foreldra og fjölskyldulífið.

Kristín Þórarinsdóttir, heilsugæsluhjúkrunarfræðingur

Barnsfæðing veldur grundvallarbreytingu á högum foreldranna. Mörg pör gera sér grein fyrir því að foreldrahlutverkinu fylgja ekki eingöngu miklar vonir og væntingar heldur getur það einnig haft spennu, kvíða og ótta í för með sér.

Rannsóknir Gottmanhjónanna  á foreldrahlutverkinu undanfarinn rúman áratug hafa leitt í ljós að hjá fleiri en tveim þriðju allra nýbakaðra foreldra minnkar gleði og ánægja við það að takast nýja hlutverkið á hendur. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands er hæsta tíðni sambandsslita á fyrstu árunum eftir barnsburð.

Rannsóknir sýna að við það að verða foreldrar upplifa pör marktækar breytingar á borð við aukna streitu og álag, breytt gildismat og markmið, breytingar á hlutverkum ásamt minni samskiptum og vináttu. Barnið komið heim  námskeiðið miðar að því að kynna helstu breytingar sem verða þegar par verður foreldrar, og leggja til gagnleg verkfæri í það verkefni.

Með fyrirlestrum, einstaklingsverkefnum og hópumræðum gefst tækifæri til að kanna breytingarnar sem foreldrahlutverkið hefur í för með sér og undirbúa sig fyrir þær og aðlagast þeim.

Sjá umfjöllun í Íslandi í dag 16. september 2009, Morgunblaðinu laugardaginn 5. september 2009, í Fréttablaðinu 14. júlí 2009 (Forsíðu ALLT) og víðar.

HEILAREGLUR OG HEILRÆÐI - Tólf reglur um heilann fyrir skóla, vinnu og heimili

HEILAREGLUR OG HEILRÆÐI er bók eftir John Medina. Medina fjallar á alþýðumáli um nýjustu rannsóknir á þessari mögnuðustu uppfinningu allra tíma – heilanum. Hann setur fram það sem hann kallar tólf heilareglur. Medina er þroskasameinda-líffræðingur. Medina hefur verið kosinn kennari ársins við háskólann í Washington. Hann er stofnandi Talaris Rannsóknarstofnunarinnar um rannsóknir á þekkingaröflun og þroska barna með tilliti til fruma og sameinda. Talaris er bakhjarl Barnið komið heim námskeiðsins.

And Baby Makes Three

And Baby Makes Three er bók eftir John og Julie Gottman sem þau skrifuðu til stuðnings námskeiðinu Barnið komið heim. Bókin er til á Borgarbókarsafninu og Bókasafni Kópavogsbæjar og Reykjanesbæjar. Ef pör sem eru að eignast barn hafa hugsað sér að lesa eina bók þá mælum við eindregið með að lesa þessa. Einnig er hægt að panta hana á www.amazon.com og hjá bókabúðum.

AUGNABLIK

Metsölubókin Blink eftir Malcolm Gladwell er komin út í íslenskri þýðingu Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur undir nafninu AugnaBlik. Í bókinni skoðar Gladwell á fróðlegan og auðskiljanlegan hátt sálfræði- og hegðunarhagfræðirannsóknir á hæfileikanum að hugsa án umhugsunar. Hann fjallar um það hvernig ákvarðanir, sem teknar eru á einu augnabliki, geta verið áhrifaríkari en þær sem byggðar eru á miklum upplýsingum.

ÞESSAR BÆKUR OG ÞRJÁR TIL VIÐBÓTAR ER HÆGT AÐ PANTA HÉR í ogg@obradgjof.is


Nánari upplýsingar um námskeiðið

Kynningarbæklingur