Bestu plötur 2008...

... finnst mér allavega 

#10   The Futureheads - This is not the world

 

The Futureheads eiga góðan sprett á þessari hressu plötu. Þeir eru minna í drengjakóraútsetningum í þetta skiptið og meira pönkaðri. Þessi plata kom manni í gang á erfiðum mánudögum.


#9   Death Cab for Cutie - Narrow Stairs

 

Death Cab eiga góð lög á þessarri en mér finnst að síðan "We have the facts and we're voting yes" kom út fækki einu góðu lagi með hverri plötu. 

#8   Beck - Modern Guilt


Það eru engin ný sannindi að Beck er snillingur, með Modern Guilt heldur hann áfram að gefa út frábæra tónlist ( fyrir utan Guerolito, sem var feilspor og sýnir að hann er mennskur )

#7   Ratatat - LP3



Ratatat er kostulegt band og á hér afar hressilega plötu. Synd að hafa ekki skellt sér á tónleikana þann 20. des. 

#6  MGMT - Oracular Spectacular


Ég kynntist þessu bandi þegar ég sá myndbandið við Time to pretend sem er upphafslag disksins. Það lag er undantekning frá því sem kemur á eftir og er, að mínu mati, það harðasta á disknum. Mæli með The Youth og Electric feel.  Tónlistin minnir á blöndu af Of Montreal og Scissor Sisters.


#5   Sigurrós - Með suð í eyrum við spilum endalaust

Fyrir þá sem ekki vita, þá er Sigurrós orðin stórt númer í útlöndum, ekki bara eitthvað íslenskt krúttband. Persónulega finnst mér fyrri helmingur plötunnar mikið betri en sá seinni, svo góður að hann kemst ofarlega á listann hjá mér. Jónsi hefur lagt fiðlubogann til hliðar og hljómsveitin leyft sér að prófa nýja hluti sem sannarlega ganga upp.

#4   Bon Iver - For Emma, Forever Ago

 

Gríðargóð frumraun Justin Vernon undir nafninu Bon Iver. Rólegur og ljúfur diskur sem rennur vel í gegn. Mæli með lokalaginu Re: Stacks

#3   Elbow - The Seldom Seen Kid

Haukur vinnufélagi kynnti mér fyrir þessum snillingum, og ber ég honum góðar þakkir fyrir.

Massafín plata, fjölbreytt og skemmtileg. Mæli líka með  Leaders of the free world sem kom út 2005. Hún er betri ef eitthvað er. 


#2   Fleet Foxes - Fleet Foxes


Svakaleg frumraun nýliðanna frá grunge borginni, sem hefur hlotið verðskuldaða athygli. Frábær plata í alla staði. Plata ársins að mati Rásar 2. Minna svolítið á My morning jacket.. nema bara miklu betri.

Fleet Foxes - A Takeaway Show


#1   Midlake - The Trials of Van Occupanther

Jæja, ok.. smá svindl í gangi. Í raun kom þessi diskur út í fyrra, en mér var ekki bent á hann fyrr en á þessu ári.  Svona geta góðir diskar leynst fyrir manni. 

Roscoe, Young Bride og Head Home eru góð lög til að byrja á.

Kjartan fær miklar þakkir fyrir að benda mér á þetta meistaraverk.