Bestu plötur 2007...

... finnst mér allavega... og ég veit best,  svo þér er hollast að vera sammála.

#10   Pocket Symphony - Air

 

Kannski ekki þeirra besti, en ekki þar með sagt að hann sé ekki frábær. Mer du Japon og Mayfair Song standa uppúr.

#9   Era Vulgaris - Queens of the Stone Age

 

Rokkar feitt en er enginn Songs for the Deaf.

#8   We Were Dead Before the Ship Even Sank - Modest Mouse


Þessi kom skemmtilega á óvart. Hann inniheldur nokkur frískustu lög sem þeir hafa samið. Mæli með Florida og We've Got Everything þar sem James Mercer (söngvari The Shins) er í bakröddum.

#7   Because of the Times - Kings of Leon



Fyrri hlutinn rokkar feitt.. seinni ekki svo mikið. Djöfull eru þeir samt alltaf flottir.

#6  † - Justice


Nei, Justice er ekki svartadauða speed-metal grind-core band. Justice er franskt electro/house band sem semur (setur saman) ótrúlega svöl lög. Tékkið á Stress og Newjack.


#5   Ga Ga Ga Ga Ga - Spoon


Emílía beilaði greinilega allt of snemma því eftir að hún tók sólóflugið, hafa hlutirnir verið að gerast hjá Spúnurum. Þeir tóku upp BNA ríkisfang og gáfu meðal annars út þetta meistaraverk. Ekki veikan punkt að finna á þessarri plötu, hann fær fimm Ga hjá mér.

#4   Sky Blue Sky - Wilco

 

Yankee Hotel Foxtrot og A Ghost Is Born: algjör meistaraverk. Sky Blue Sky er svo sannarlega í sama gæðaflokki. Þessi er þó aðeins dekkri, þyngri og rólegri en fyrri diskar. Mæli þó með Wilco byrjendur að taka tvo fyrri áður en Sky Blue Sky er settur í.

#3   Neon Bible - Arcade Fire

 

Frábær... nema kannski þegar stúlkukindin byrjar að gaula. Fyrri diskurinn var jarðarför á miðað við þennan.

pun intended... hohohehehoohohohohehoheheonbible.



#2   Wincing the Night Away - The Shins


Þessi er búinn að vera í græjunum síðan í febrúar 2007. Fæ aldrei leið á honum.  Áhlustun er bulli betri. 

#1   In Rainbows - Radiohead

 

Þetta ætti að koma fáum á óvart. Þessir dúddar fundu upp góða tónlist og hinir eru misvel að reyna að feta í fótspor þeirra. Mig minnir að ég hafi skrifað spés blogg um þennan, þ.a. ég læt þar við sitja....... snilld.... ég varð!!