Sigrún María Ammendrup


Rannsókn

 

 

Tungutæknivefur

Núna er ég í tungutækninámi (sjá slóð hér fyrir ofan) sem er ótrúlega spennandi. Áður en fólk fer að hugsa eitthvað dónalegt þá er þetta málfræði og tölvufræði sett saman í eitt heildstætt nám :D. Ég er farin að huga að lokaritgerðinni og til að vera í samræmi við BA-ritgerðina þá væri ég mjög spennt fyrir að gera málfarsrannsókn. Eiríkur Rögnvaldsson er leiðbeinandi minn í náminu og er ég mjög þakklát fyrir hans hjálp í einu og öllu.

Ég hef lokið BA ritgerðinni minni en hún fjallar um flámæli og uppruna þess, þ.e. eins og hægt er að sjá af bréfaskrifum frá 19. öld. Haraldur Bernharðsson var leiðbeinandinn minn og á hann stórt hrós skilið fyrir þolinmæði og hjálpsemi. 

Sumarið 2006 vann  ég að Nýsköpunarverkefni sem heitir ,,Hvernig tala ungir Íslendingar í byrjun 21. aldar?" Ásta Svavarsdóttir fræðimaður á Orðabók Háskólans var umsjónarmaður þessa verkefnis. Hún kenndi mér mikið varðandi málrannsóknir og er ég henni óendanlega þakklát.  

Mín framtíðarósk er sú að fá að halda áfram að gera rannsóknir á tungumálinu enda finnst mér það afskaplega áhugavert og spennandi.