Fjölskylduferð til Kúbu páskana 2006
Best aðbyrja frá byrjun:
Fyrir ca. 5 árum var planið að fara í fjölskylduferð til útlanda. Þetta átti að vera svona síðasta fjölskylduferð okkar fjögurra enda við "litlu stelpurnar" á 17. og 20. ári. Farnar að fara erlendis á eigin vegum og mikið uppteknar í námi, borðtennis ofl....greinilega of uppteknar því ekki fannst tími til að fara saman í þessa ferð.
Í tilefni að fimmtugsafmælum foreldranna (nóv 05 og jún 06) var ákveðið að láta loksins verða af þessarri langþráðu ferð. Það dugði ekkert minna en Kúbuferð til...
Þridjudagurinn 11/4 2006
Fórum snemma af stað..flugið til Kúbu gekk vel..vorum svo heppin að það var nóg pláss í vélinni svo við gátum dreift úr okkur:) Millilentum í Gander (í Kanada) eog fengum þar að skreppa út úr vélinni á meðan eldsneyti var bætt á. Skoðuðum í minjagripabúð og keyptum að sjálfsögðu maplesyrup. Þess má geta að Gander er í hálfu tímabelti..hehe
Þegar við komum til Kúbu (-4 klst miðað við Ísland) tók við vegabréfsskoðun á flugvellinum..hún gekk hægt en vel. Af tillitsemi við ferðamenn er ekki stimplað inní vegabréfið heldur á sérstakan fylgiseðil, þar sem slíkt gæti valdið vandræðum í sambandi við ferðalög til Bandaríkjanna. En það er einmitt lögbrot fyrir bandaríska ríkisborgara að fara til Kúbu (hægt að sækja um leyfi í sérstökum tilfellum).
Við komum á hótelið um kvöldmatarleitið, vorum frekar þreytt svo við borðuðum bara á hlaðborðinu þar. Mikið úrval af mat en ekkert svo góður. Hótelið var flott og var staðsett í Miramar sem er úthverfi í Havana. Það er frekar fínt hverfi með mörgum sendiráðum, það stærsta og flottasta er það rússneska en það er heilt hverfi útaf fyrir sig.
Miðvikudagurinn 12/4 2006
Skelltum okkur snemma í morgunmat og tókum síðan strætó niðrí miðbæ Havana. Hoppuðum þar strax uppí hestvagn og fórum rúnt um gamla bæinn. Hestvagnagaurinn benti okkur á það helsta (á sinni ekkert súpergóðu ensku). Á leiðinni tók hann líka vin sinn uppí og stoppaði svo í einni sjoppu að hustla e-rja gellu. Þetta var annars ágætis rúntur, fínt að fá smá yfirlit þar sem við vorum ekki ennþá búin að kaupa kort af borginni:)

Eftir skoðunarferðina í hestvagninum fórum við á götumarkað og skoðuðum fullt af dóti og keyptum e-ð smotterí en ákváðum að koma aftur seinna.
Síðan héldum við árfam að rölta um og skoða. Það var ótrúlegt að sjá hvað byggingar voru margar hverjar illa farnar af viðhaldsleysi. En maður gat ímyndað sér hvesu glæsileg húsin hafa verið á sínum tíma.
Það kom á óvart hversu lítið var um betl og sýnilega fátækt. Fólk var í fínum fötum og hreint þrátt fyrir að eiga kannski lítið. Það hefur eflaust mikil áhrif að ókeypis er í skólana og því sáum við mikið að skólakrökkum í skólabúningum.
Ég held að orðið fornbíll hafi enga merkingu á Kúbu. Þar er nefnilega bílaflotinn töluvert eldri en gengur og gerist annar staðar í heiminum. Pabbi fílaði þetta náttúrulega og hafði gaman af því að skoða gamla bíla, sérstaklega jeppa og vörubíla.
Þegar við vorum á leiðinni uppá hótel um eftirmiðdaginn fór að rigna, eða réttara er eflaust að segja RIGNA. Myndin hér lýsir bæði rigningunni og almenningssamgöngum í Havana. Held þetta sé e-rs konar trailervagn. Fólkið sem er að hlaupa í burtu gafst upp á því að troða sér inn (skiljanlega).
Okkur gekk nú ekki mikið betur að fá leigubíl en þessu fólki að komast í strætó. Síðan allt í einu stoppaði blár bíll sem ekki var merktur taxi. Við töluðum við bílstjórann sem var tilbúinn að keyra okkur á hótelið. Við buðum 10 en hann vildi 15 því bíllin var svo gamall og eyddi miklu..samþykktum það. Bílstjórinn talaði ekki mikla ensku en tókst að segja okkur að bíllinn var 51 árs og með upprunalega vél. Afi hans hafði gefið föður hans bílinn og faðir hans honum. Hann ætlar síðan að gefa bílinn sínum syni þegar hann verður 20 ára en hann er 3 ára núna (er það bara ég sem tel þetta bjartsýni?) Þetta var annars skemmtileg upplifun, sennilega elsti bíll sem ég hef verið í. Það er annars mikið ferðast um á puttanum á Kúbu, en heimamenn mega samkvæmt lögum ekki taka útlendinga uppí.
Planið var að fara síðan út að borða um kvöldið í nágreni hótelsins, en þegar við vorum að leggja af stað kom demba svo við enduðum aftur á hlaðborðinu.
Fimmtudagurinn 13/4 2006

Þar sem það var ansi rigningarlegt (eða kannski bara rigning) um morguninn var ákveðið að leigja bíl..fengum hann bensínlausan svo fyrsta missionið var að taka bensín. Það reyndist ekkert grín því við vorum greinilega ekki velkomin á hvaða bensínstöð sem er. Veit ekki hvort fyrsta bensínstöðin sem við fórum á var bara fyrir heimamenn eða kannski ríkisstarfsmenn..okkur var allavega vísað frá með þeirri penu handabendingu ap draga höndina þvert yfir hálsinn. Við fundum svo aðra rétt í tæka tíð og þar var skemmtilega löng röð (mest gamlar Lödur).
Síðan ókum við í bæinn og kynntumst því að leggja bíl í Havana. Það fer þannig fram að maður keyrir þangað til maður sér mann standa í lausu stæði og veifa. Síðan leggur maður í stæðið og ýmist borgar fyrir eða eftir notkun. Á mörgum stöðum held ég að þetta sé alvöru starf, þeir menn eru með nælu í barminum og skrá e-ð niður, þeir eru þá með e-ð smá svæði. En svo eru líka bara menn sem stunda það að standa í bílastæði til að fá pening.
Þegar við vorum komin með bílastæði var stefnan tekin á Capitolio bygginguna en hún var lokuð í hádeginu. Við fengum okkur þá bara að borða og fórum síðan á byltingarsafnið. Þarna stöndum við mæðgur ásamt Che Guevara. Sjónarhornið ekki alveg það besta en þarna var eina borðið til að stilla myndavélinni á (pabbi varannarstaðar að skoða).
Það er tvöfalt hagkerfi (er ekki viss um að það sé rétta orðið) á Kúbu. Það er ein mynt fyrir innfædda, peso og önnur fyrir ferðamenn, peso convertible sem er jöfn bandarískum dal. Það eru 24 peso i einu peso convertible. Skemmtilegt dæmi er aðgangseyririnn inná byltingarsafnið. Ef myndin er ekki nógu skýr þá stendur að það kosti 4 peso fyrir heimamenn en 5 peso convertible eða CUC fyrir útlendinga...slatta munur.
Það kom annars töluvert á óvart að það er frekar dýrt að vera ferðamaður þarna..sennilega ódýrara að vera á Spáni.
Við keyrðum síðan aðeins um og kíktum á ávaxtamarkað heimamanna. Minnsti peningurinn sem við vorum með var 1 CUC og keypti mamma banana fyrir hann..fékk um 20 banana (og var líklega að borga uppsprengt verð).
Um kvöldið fórum við út að borða á gamlan veitingastað með ekta kúbönskum mat. Týpiskur matur er steiktur kjúklingur, hrísgrjón og svartar baunir (líta frekar sjabbí út).
Föstudagurinn 14/4 2006
Ákváðum að hafa bílinn áfram á leigu ogskelltum okkur aftur á markaðinn. Keyptum m.a. listaverk og bongótrommu...og auðvitað Castro húfur :) Áttum síðan pantað borð á "heimaveitingastað" í hádeginu. Þetta er svo vinsæll staður að við fengum ekki borð að kvöldi til. Það var mjög áhugavert að borða þar og borðaði ég m.a. hráa eggjarauðu. Pantaði mér nefnilega cesar sallat og eggjarauðan var í dressingunni. Ég hefði aldrei vitað af því nema því að þetta var svona fancy að það kom stelpa að borðinu og blandaði sallatið fyrir framan okkur.
Við hundsuðum annars allar reglur um að fara varlega í matinn til að forðast magavesen. Fengum klaka í drykkina, borðuðum hrátt grænmeti, keyptum ís útá götu (var svo vondur að ég hennti honum og ég er sko ekki vön að henda ís) og ábyggilega fleira. En við sluppum vel sem betur fer.
Eftir matinn fórum við á listasafn og komumst að því að Kúbverjar eiga góða listamenn. Það var bannað að taka myndir inná safninu en hér er hópmynd tekin fyrir utan.
Þjóðardrykkurinn verður að teljast Mohito sem samanstendur af rommi, sítrónusafa, sykri, piparmynntulaufum og sennilega sódavatni. Mér finnst hann ekkert svo góður en það fer víst mjög mikið eftir því hvernig hann er blandaður (hef það eftir Sólrúnu sem er Mohito sérfræðingur). Við fengum okkur allavega drykk á bar tileinkuðum Hemmingway en hann er mjög vinsæll á Kúbu, enda skrifaði hann mikið þar. Það er mynd af honum á veggnum.
Þetta síðasta kvöld í Havana var tekið með trompi. Við fórum á svakalega flottan veitingastað með "spoken menu" og þar sem helt er fyrir mann í glösin (ekki bara fyrst heldur líka bætt á). Það var flott band að spila og maturinn var góður. Reikningurinn var í samræmi við flottheitin...
Laugardagurinn 15/4 2006
Fyrir hádegi slöppuðum við að við sundlaugina á hótelinu sem við höfðum annars ekki haft tíma til að njóta. Í hádeginu fórum við svo með rútu til Varadero á srandhótelið með "all included". Það tók sinn tíma að komast þangað en á leiðinni stoppuðum við og fengum besta pina colada drykk á Kúbu (og jafnvel víðar). Þetta var reyndar í annað skipti sem við stoppuðum þarna því á leiðinni frá flugvellinum til Havana gerðum við það líka.
Það byrjaði ekki vel í Varadero því Sólrún tábrotnaði(eða tábrotnaði næstum því) á stórutá við það að burðast með ferðatöskuna upp stigann á hótelinu (lyftan var biluð og hún hrasaði held ég). Við fengum okkur síðan kvöldmat á pizzastað á hótelinu en það var sérkennilegt að panta bara það sem maður vildi og ganga síðan út án þess að borga...fíla það sko:)
Páskasunnudagurinn 16/4 2006

Við Sórún vöknuðum um kl. 3 um nóttina við ákaft dropahljóð..sem reyndist koma úr loftinu hjá okkur..dem. Þetta var töluvert vatnsmagn..nenni ekki að lýsa þessu nákvæmlega en við fórum aftur að sofa rúmlega 5 og skiptum um herbergi um morguninn. Tók mynd af viðgerðarmanninum.
Slöppuðum af í sólbaði bæði við sundlaugina og á ströndinni...og kældum okkur með hinum ýmsu drykkjum. Tók líka borðtennisleik við pabba. Um kvöldið fórum við í göngutúr í e-n garð í nágreninu. Þegar við komum aftur á hótelið var danssýning að byrja. Fyrst var sýndur dans og síðan var fólk tekið upp..við mismikinn fögnuð útvaldra.
Mánudagurinn 17/4 2006
Síðasti heili dagurinn á Kúbu. Fórum í göngutúr í bæinn og sóluðum okkur síðan seinni partinn. Um kvöldið borðuðum við á kúbverskum veitingastað á hótelinu sem var líka innifalinn en það þurfti að panta borð.
Þriðjudagurinn 18/4 2006
Tékkuðum okkur út um hádegið og fórum á flugvöllinn. Þar komumst við að því að það var stútfull vél heim og frjálst sætaval...ekki það sniðugasta. Áður en við fórum í öryggistékkið skröpuðum við saman síðasta peningnum til þess að greiða brottfararskattinn, sem er 25 CUC á mann. Eftir langa bið í röð (til að fá sæti saman) komumst við inní vél og fengum sæti 3+1 eins og við vildum. Pabba var síðan boðið sæti með meira fótaplássi sem hann þáði með þökkum..svo við vorum bara mæðgurnar saman og svo pabbi sér. Það voru engir koddar eða teppi í boði á leiðinni (held það hafi gleymst) og ekki hægt að stilla höfuðpúðann eins og oft er hægt í löngum flugum. Þrátt fyrir þetta gekk flugið ágætlega..
Miðvikudagurinn 19/4 2006
..lentum í Keflavík um kl. hálfátta um morguninn. Ég tékkaði mig inn til Danmerkur (átti flug kl. 13) og fór svo með fjölskyldunni í bæinn. Mamma fór heim og skipti um föt og mætti svo í vinnuna. Sólrún fór hiem til sína að sofa/læra og við pabbi löggðum okkur í klukkutíma, fengum okkur svo að borða og svo skutlaði hann mér útá völl.
Ég lenti í vandræðum með að finna kúlusúkk í fríhöfninni en það slapp fyrir horn:) Flaug síðan ansi þreytt til Kaupmannahafnar þar sem Grjóni sótti mig útá flugvöll. Hann þurfti þó að bíða ansi lengi þar sem taskan mín var svo lengi að koma..og svo var hún skemmd. Það tók auðvitað sinn tíma að láta gera "damage report" en að lokum komst ég heim og í rúmið mitt.
Aðrar myndir
Jæja þá er ferðasagan komin svona nokkurnvegin. Vissi ekki alveg hversu mikið af myndum ég átti að setja en ég er með um 600 myndir á tölvunni. Skelli nokkrum myndum inn hér fyrir neðan:
Sölukonan á ströndinnivar alveg æst í að hjálpa mömmu að máta peysuna..hehe
Ég í góðum félagsskap:)
Sólrún að missa tökin á dótinu..í bókstaflegri merkingu. Við fórum með nokkur pennaveski, skólatöskur, liti, stílabækur og fleira smádót inn í hverfi í Havana til að gefa börnum. Fljótlega voru börnin 5 sem við sáum leika sér orðin að stórum hóp (og ekki bara börn).
Mamma búin að fjárfesta í hatt.
5 stjörnu hótelið sem okkur var bent á. Með fríum mat og gæslu allan sólarhringinn (en þetta er víst fangelsi og lögreglustöð).
Ekki óalgeng sjón á götum Havana.
Götumynd.
Hús að hruni komið.
Skólakrakkar í leikfimi á einu torginu.
Litlar gular kúlur á hjólum sem virka eins og leigubílar fyirir 2.
Illa viðhaldin bygging.
Pabbi að skoða á bókamarkaði.
Herbergisstúlkurnar hafa greinilega farið á námskeið í handklæðabroti:)
Nóg af línum...
























