Litríkar og skemmtilegar æfingadagbækur fyrir tónlistarnemendur til að skrá
heimaverkefni og heimaæfingar með plássi til að safna límmiðum fyrir
hverja æfingu. Aftast í bókinni eru sérstakar síður fyrir jóla-, páska- og
sumaræfingar ásamt síðum til að skrá tónleika, námskeið
og aðra viðburði vetrarins. Um er að ræða tvær mismunandi gerðir: Æfingabókin mín - fyrir unga tónlistarnemendur (að 9-10 ára aldri) Æfingadagbók - fyrir eldri tónlistarnemendur sem eru orðnir sjálfstæðari í sínum heimaæfingum (eldri en 10 ára) Staðlaðar útgáfur af bókunum fást í Tónastöðinni, Skipholti 50D í Reykjavík. Hægt er að sérpanta bækur í öðrum litasamsetningum og fá nafn prentað á kápuna en þá getur afgreiðslufresturinn verið nokkrar vikur. Sérprentaðar bækur kosta 2000 kr. |



