Eftir góðan fyrri hálfleik á móti Slökkviliðinu töpuðum við 6-2.
Staðan í hálfleik var 0-0 og voru færi á báða bóga.
Stuttu eftir að seinni hálfleikur byrjaði kom 5 mínútna kafli þar sem engin einbeiting var í liðinu og við fengum á okkur 4 mörk. Við náðum þó að svara með 2 mörkum á 4 mínútum. Við áttum nokkur færi í viðbót en allt kom fyrir ekki, og þeir náðu að pota inn 2 í viðbót eftir að hafa hálf rotað markmann okkar með þrumuskoti.
Alls voru 4 mættir úr FC Hasselhoff og 5 lánsmenn.
Mættir voru:
Mundi
Freysi
Mundi 2
Sigvaldi
+ lánsmenn.
Tvö gul spjöld fóru á loft á okkur... minnir mig. Grófasta tæklingin fékk þó ekki spjald - Freysi meiddist nebbla þegar hann tæklaði gaurinn og dómarinn vorkendi honum ;-)
En 6-4 tap er ekki slæmt miðað við að Slökkviliðið hafði held ég 7 skiptimenn á meðan við höfðum 1 í fyrri hálfleik og engan í seinni. Held þetta hefði orðið mun jafnara ef við hefðum haft sprækar lappir á hliðarlínunni... |