Upprifjun á reglum um stigagjöf :
Leikreglur FC Hasselhoff 1. Hver leikur er upp á 5 mörk, þegar 5 mörkum er náð fær liðið einn bikar 2. Hver leikmaður í því liði sem fær fleiri bikara fær 4 stig 3. Hver leikmaður í því liði sem tapar fær 2 stig 4. Sá leikmaður sem sér sér ekki fært að mæta fær -2 stig ef hann tilkynnir það ekki tímanlega en 0 stig annars
5. Ef leikmaður mætir eftir að tími byrjar er það -1 stig.
6. Ef það lið sem tapar vinnur engan leik fá allir leikmenn þess liðs 1 stig (fyrir mætingu) 7. Liðin breytast í hverri viku eftir stigafjölda leikmanna. Fyrstu leikviku er raðað eftir stafrófsröð 8. Ef sá sem sér um vestin gleymir þeim er það -1 stig. 9. Í lok leikviku ræðst staða leikmanna af : a. Heildar stigafjölda b. Ef enn er um jafntefli að ræða þá er sá fyrir ofan sem mætt hefur í fleiri tíma c. Ef enn er um jafntefli að ræða þá er farið eftir stafrófsröð.
Svo legg ég til að hver og einn leggi í púkk eina bjórkippu eða rauðvínsflösku bæði fyrir fimmtudagstímann og þriðjudagstímann.
Þessi pottur skiptist svo niður á 2 efstu sætin í lok annarinnar , þar sem fyrsta sætið fær ca. 2/3 og annað sætið 1/3 af pottinum
|
Bara töff, þetta verður gaman! :D
Gott mál, hver heldur utan um þetta?
Ætli það verði ekki bara ég... var ágætur í þessu þar til þetta datt uppfyrir.
brilljant! á þetta bæði við þriðjudags og fimmtudagsboltann? er það aðskilið eða allt tekið saman?
Höfum það aðskilið... Hannes og Mundi 2 eru t.d. bara í þrijðudagsboltanum