Töpuðum naumlega í kvöld, með marki sem kom á síðustu mínútu leiksins eftir misskilning í vörninni.
Fyrri hálfleikur var góður hjá okkur og spilið fínt, í þeim síðari var minna um að menn spiluðu boltanum og við komumst lítið sem ekkert í sókn.
Þrátt fyrir að hafa 7 skiptimenn virtust menn ekki vera að keyra sig út, sérstaklega í seinni hálfleik. Vantar miklu fleiri hlaup í svæðin og þríhyrningaspil.
Við getum þakkað stórglæsilegri markvörslu fyrir að hafa ekki tapað stærra :-) nú er bara að vona að markmaðurinn sjái sér fært að mæta í fleiri leiki...
Við eigum góða möguleika á einhverjum sigrum í sumar ef megnið af þeim mannskap sem mætti í kvöld getur mætt áfram.
Svo að lokum má ekki líta framhjá því að þetta er besti árangur F.C Hasselhoff í deildinni :-) |