F.C. Hasselhoff

1039days until
Gjaldeyrisviðskipti verða eðlileg

Heim‎ > ‎Fréttir‎ > ‎

Hasselhoff 0 - 12 Hvatur

posted May 11, 2009 7:21 AM by Þórmundur Helgason
Mættum firnasterkum strákum í Hvat síðasta föstudag og þeir tóku okkur vægast sagt í kennslustund...
 
Sem fyrr vorum við frekar fáliðaðir, með aðeins 1 skiptimann.
 
Þurfum að ná inn 3-4 strákum í viðbót... þannig að endilega spjallið við vini og ættingja og fáið þá til að vera með :-)
 
MARKMANN, KONUNGSRÍKI MITT FYRIR MARKMANN :-)
 
Næsti leikur er kl. 22.00 á þriðjudaginn á móti Innri Fegurð - Þeir hafa spilað lengi í deildinni og eru mjög sterkir.  Við verðum að ná betra skipulagi í okkar leik til að halda aftur af þeim, þá helst í vörn.  Spilamennska fram á við var sæmileg í síðasta leik og við hefðum getað sett 1-2 mörk með smá heppni.
 
 

Comments (1)

Þórmundur Sigurbjarnason - May 11, 2009 4:00 PM

Já, þurfum að vera betur skipulagðir á morgunn. Gekk ágætla framan við í seinasta leik. Þurfum að stilla betur upp. Verðum helst að hafa 2 fasta í vörninni, sem fara ekki fram. Einn fastann frammi sem að fer ekki aftar en miðju. Hafa tvo á vængjunum sem að koma hratt upp og hratt til baka í vörnina. Svo einn fastann í miðjunni sem fer fram og til baka :D

Hvað er samt með búninga? Eru ekki til treyjur á liðið eða eru þær í "einkaeign" ?
BROS eru með flott tilboð... http://www.bros.is/hummel.html

Over and OUT
Mundi #2