posted Nov 6, 2009 2:44 AM by Þórmundur Helgason
Vinsamlegast allir að lesa til enda.
Ég er búinn að segja upp tímanum okkar í Breiðholtsskóla þar sem við sitjum 6 eftir með tímann eftir að 3 droppuðu út... svo fór Gunni út og við erum 5 eftir. Ekki hefur heldur tekist að manna tímann síðustu 2 eða 3 skipti.
Skráðir í Breiðholtsskóla voru
Ég
Kiddi
Hilmar
Gunni
Binni
Eiríkur
Valli - hætti eftir ca. mánuð
Við sleppum með að borga fyrir sept og okt - og fáum vexti sem komnir eru á innheimtuna niðurfellda og þurfum að borga 47.520 í staðinn fyrir einhvern 85.000 kall.
Vil ég því biðja þá sem skráðir eru í Breiðholtsskóla að millifæra á mig hið snarasta 6.789 krónum. Ég veit að einhverjum kann að finnast ósanngjarnt að borga því þeir hafi mætt í fáa tíma o.s.frv. - en ég sjálfur hef bara getað mætt tvisvar.
Hægt er að leggja inn á 0315-26-304, kt. 111077-3049.
Nú að öðru
Ég segi hérmeð upp sem gjaldkeri og skipuleggjandi fótbolta tíma hjá okkur - það fer allt of mikill tími og orka í að manna tímana og sjá um að rukka ykkur. T.d. eru enn 2 sem eiga eftir að borga fyrir Sporthúsið síðasta vor (Ingó og Skúli).
Þessi uppsögn er ekki til umræðu heldur er hún einfaldlega staðreynd. Ef einhver annar/aðrir eru vilja taka þetta að sér þá er ég meira en tilbúinn að vera með í boltanum áfram eftir áramót.
PS. Eiríkur þú skuldar mér enn fyrir Sporthúsið!
kv.
Mundi |
posted Sep 24, 2009 6:09 AM by Þórmundur Helgason
Sælir,
Fékk póst frá Ólafi Garðars, sem sér um Carlsbergdeildina...
"
Það hefur verið ákveðið að bjóða upp á Vetrarbolta í vetur. Það verður byrjað upp úr 10. okt og verða þau lið sem hug hafa á þátttöku að tilkynna sig inn vel fyrir þann tíma. Staðfestingargjaldið er 25.000 og greiðist sem allra fyrst. Ef þitt lið á inni tryggingargjald frá Carlsbergdeildinni 2009 þá er hægt að láta það renna upp í staðfestingargjaldið í Vetrarboltanum. Ef ekki þá greiði ég það út um mánaðarmótin og þarf ég því að fá reikningsnúmer og kennitölu þeirra sem vilja fá tryggingargjaldið endurgreitt. Þær upplýsingar sendist á olafur.gardarsson@gmail.com. Á sama netfang sendist þátttökutilkynning í Vetrarboltanum. Stærð Vetrardeildarinnar er óákveðin og ræðst af fjölda þátttökuliða. Skráningu lýkur sunnudaginn 4. Október. Þá verður hamrað saman fyrirkomulaginu og fyrstu leikir ákveðnir. Stefnt er að því að byrja í vikunni eftir sunnudaginn 11 . okt. Endanlegt þátttökugjald ræðst af þeim fjölda sem skráir sig til leiks í vetur. T.d. kostaði hver leikur í Carlsbergdeildinni X upphæð og hverju liði skaffað a.m.k. 10 leikir. Leikjafjöldi í Vetrardeildinni gæti orðið meiri, en það fer eftir þátttöku. Hver leikur verður aðeins ódýrari en í Carlsbergdeildinni í sumar, en lágmarksleikjafjöldi gæti orðið meiri. Sú hugmynd sem ég er að gæla við gengur út á 4 liða riðla og eftir þá riðlakeppni þá fara 2 efstu liðið í A. Deild og restin í B.deild. Þannig yrði stuðlað að meiri jafningjakeppni og leikir yrðu jafnari. Liðin tækju innbyrðisviðureignir sínar með sér í deildirnar. Setjum upp dæmi: 24 lið skrá sig til leiks. Þeim yrði raðað í 6 riðla. 2 efstu liðin eftir riðlakeppnina fara í A deild en hin í B deild. Hvert lið fengi 3 leiki í riðli og 10 leiki í Deild. 13 leiki alls. Sigurvegari A deildar yrði svo sigurvegari Vetrarmóts. Sigurvegari B deildar fengi verðlaun fyrir þann sigur. Greiðsla staðfestingargjalds yrði innt af hendi úti í Leiknishúsi. Best er að koma með gjaldið í lausafé og er hægt að greiða frá 9:00 til 21:00 alla virka daga. Þá er einnig hægt að koma með athugasemdir um framkvæmd mótsins beint í æð, ef svo má að orði komast. Viðtakendur greiðslunnar skrifa niður athugasemdirnar, ef ég er ekki við. Ég er við frá 9:00 til 17:00 alla virka daga. Síminn minn er 8921811 ef einhver vill bjalla í mig. Ég óska eftir svari sem allra allra fyrst við þessu bréfi. Pláss í Vetrardeildinni eru takmörkuð, svo því á máltækið Fyrstir koma, fyrstir fá, vel við. Þegar hafa 12 lið lýst yfir vilja sínum um þátttöku. Það eru viðbrögð við fyrra bréfi mínu þar sem hugmyndin um Vetrardeildina komu fram. Það bréf var sent á öll lið, en aðeins 15 svöruðu. Þessi 12 lið hafa forgang við skráningu, en samt verð ég að fá staðfestingu frá þeim. Skráning er með hefðbundnum hætti. Nafn liðs, nöfn tveggja forráðamanna , gsm og netföng þeirra beggja.
"
Látið mig vita með sms ef þið hafið áhuga... sem allra fyrst :-) |
posted Jun 16, 2009 4:53 PM by Þórmundur Helgason
Maðurinn sem náði varla andanum eftir 5 mínútna leik í upphafi tímabils endaði á toppnum. Sigvaldi og ég (Mundi) vorum jafnir með 60 stig, en þar sem það á að teljast mönnum til hagnaðar að mæta í sem flesta tíma þá raðast Sigvaldi fyrir ofan mig - en hann mætti líka oftast af öllum. Helgi sem var í efsta sæti fyrir loka umferðina datt niður í það þriðja þar sem hann gat ekki mæt í síðasta tímann...
Svo vil ég minna menn á að þar sem við ætlum að halda tímanum næsta haust þá fáum við sumarið frítt í Sporthúsinu... þannig að svo lengi sem við náum mannskap þá eru tímar kl. 18.10 í allt sumar á þriðjudögum.
Allavega, TIL HAMINGJU SIGVALDI :)
|
|
Heildarstig |
Mæting |
| 1 |
Sigvaldi |
60 |
|
21 |
| 2 |
Mundi |
60 |
|
19 |
| 3 |
Helgi |
59 |
|
19 |
| 4 |
Freysi |
47 |
|
20 |
| 5 |
Maggi |
35 |
|
13 |
| 6 |
Biggi |
31 |
|
10 |
| 7 |
Björgvin |
30 |
|
12 |
| 8 |
Hilmar |
29 |
|
12 |
| 9 |
Skúli |
19 |
|
6 |
| 10 |
Ingó |
18 |
|
9 | |
posted May 15, 2009 5:45 AM by Þórmundur Helgason
posted May 12, 2009 4:48 PM by Þórmundur Helgason
Töpuðum naumlega í kvöld, með marki sem kom á síðustu mínútu leiksins eftir misskilning í vörninni.
Fyrri hálfleikur var góður hjá okkur og spilið fínt, í þeim síðari var minna um að menn spiluðu boltanum og við komumst lítið sem ekkert í sókn.
Þrátt fyrir að hafa 7 skiptimenn virtust menn ekki vera að keyra sig út, sérstaklega í seinni hálfleik. Vantar miklu fleiri hlaup í svæðin og þríhyrningaspil.
Við getum þakkað stórglæsilegri markvörslu fyrir að hafa ekki tapað stærra :-) nú er bara að vona að markmaðurinn sjái sér fært að mæta í fleiri leiki...
Við eigum góða möguleika á einhverjum sigrum í sumar ef megnið af þeim mannskap sem mætti í kvöld getur mætt áfram.
Svo að lokum má ekki líta framhjá því að þetta er besti árangur F.C Hasselhoff í deildinni :-) |
posted May 11, 2009 7:21 AM by Þórmundur Helgason
Mættum firnasterkum strákum í Hvat síðasta föstudag og þeir tóku okkur vægast sagt í kennslustund...
Sem fyrr vorum við frekar fáliðaðir, með aðeins 1 skiptimann.
Þurfum að ná inn 3-4 strákum í viðbót... þannig að endilega spjallið við vini og ættingja og fáið þá til að vera með :-)
MARKMANN, KONUNGSRÍKI MITT FYRIR MARKMANN :-)
Næsti leikur er kl. 22.00 á þriðjudaginn á móti Innri Fegurð - Þeir hafa spilað lengi í deildinni og eru mjög sterkir. Við verðum að ná betra skipulagi í okkar leik til að halda aftur af þeim, þá helst í vörn. Spilamennska fram á við var sæmileg í síðasta leik og við hefðum getað sett 1-2 mörk með smá heppni.
|
posted May 4, 2009 4:33 PM by Þórmundur Helgason
Eftir góðan fyrri hálfleik á móti Slökkviliðinu töpuðum við 6-2.
Staðan í hálfleik var 0-0 og voru færi á báða bóga.
Stuttu eftir að seinni hálfleikur byrjaði kom 5 mínútna kafli þar sem engin einbeiting var í liðinu og við fengum á okkur 4 mörk. Við náðum þó að svara með 2 mörkum á 4 mínútum. Við áttum nokkur færi í viðbót en allt kom fyrir ekki, og þeir náðu að pota inn 2 í viðbót eftir að hafa hálf rotað markmann okkar með þrumuskoti.
Alls voru 4 mættir úr FC Hasselhoff og 5 lánsmenn.
Mættir voru:
Mundi
Freysi
Mundi 2
Sigvaldi
+ lánsmenn.
Tvö gul spjöld fóru á loft á okkur... minnir mig. Grófasta tæklingin fékk þó ekki spjald - Freysi meiddist nebbla þegar hann tæklaði gaurinn og dómarinn vorkendi honum ;-)
En 6-4 tap er ekki slæmt miðað við að Slökkviliðið hafði held ég 7 skiptimenn á meðan við höfðum 1 í fyrri hálfleik og engan í seinni. Held þetta hefði orðið mun jafnara ef við hefðum haft sprækar lappir á hliðarlínunni... |
posted May 2, 2009 5:02 AM by Þórmundur Helgason
Sælir félagar,
Fyrsti leikur í deildinni er svo næsta föstudag kl. 19.00.
Mig vantar að vita hverjir eru tilbúnir að vera með okkur í deildinni í sumar. Væri frábært að ná ca. 14 - 16 manna hópi þar sem augljóslega geta ekki allir náð að spila alla leiki.
Að fá markvörð væri líka geggjað :-)
Þannig að ef þið vitið um einhvern sem gæti verið tilbúinn að spila með okkur þá tékkið á þeim og látið mig vita.
Sendið mér SMS sem allra fyrst hvort þið ætlið að vera með í sumar og þá líka hvort þið getið mætt í leikinn á morgun.
kv.
Mundi |
posted Apr 24, 2009 1:44 AM by Þórmundur Helgason
Deildin byrjaði í gær með leikjum í bikarkeppninni. Ekki komnar dagsetningar fyrir fyrstu umferð og næstu leiki í bikar, en hlýtur að gerast von bráðar
Ég var ekki kominn með staðfestan lista yfir þá sem vilja vera með, sendi út sms á ykkur bráðlega.
kv.
Mundi |
posted Feb 10, 2009 12:58 AM by Þórmundur Helgason
[
updated Mar 2, 2009 7:33 AM
]
Verður að borgast NÚNA! ! ! !
Sporthúsið
204.350 .- er heildarkostnaðurinn... 20.435 á mann.
Gunni og Doddi borga 3.400 á mann fyrir 4 tíma. Þeir eru hættir.
Maggi kemur inn fyrir annan þeirra og borgar þá 17.035.- .
Biggi kemur inn fyrir annan þeirra og borgar þá 17.035.- .
Verður að borgast NÚNA! ! ! !
Breiðholtsskóli
80.000.- er heildarkostanðurinn. 8.900 á mann (Erum níu).... Maggi borgar svo 7.500, hann dettur inn sem 10. maðurinn.
Sá peningur fer í vaxtakostnað sem ég hef lagt út fyrir síðustu ár !
Borga inn á 1150-05-477110, kt. 111077-3049.
Verður að borgast NÚNA! ! ! ! |
|